„Þá þurfum við að gera miklu betur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. júní 2026 19:06 Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. vísir/bjarni Geðheilbrigðismálum innan fangelsiskerfisins er stórlega ábótavant að mati framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því að eftirlit og geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsa verði rannsökuð. Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði aðfaranótt sunnudags hét Sigurður Fannar Þórsson. Hann afplánaði sextán ára dóm fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana við Krýsuvíkurveg í september árið 2024. Hann játaði sök í málinu á sínum tíma en bar fyrir sig minnisleysi. Hann hafði glímt við andleg veikindi um skeið. Sigurður var ekki í einangrun umrædda nótt og er talið að hann hafi svipt sig lífi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að fangelsi hér á landi séu ekki til betrunar. „Fangelsismál á Íslandi eru birtingarmynd þess að við erum ekki að betra fólk. Ef við horfum á þetta þannig að við ætlum ekki bara að loka fólk inni og refsa því. Síðan kemur þessi betrunarhugmynd. Við verðum í þeim veruleika sem við erum í núna að huga að því. Því það er mjög mikið af málum. Við erum ekki að senda fólk þangað til að fá hjálp og fleira sem ég held að flestir sem eru dæmdir í fangelsi þurfi á að halda. Það er kannski löng áfallasaga að baki. Þetta kemur ekki upp í einhverju tómarúmi. “ Lögmaður Sigurðar velti upp spurningum um aðbúnað og öryggi fanga í skriflegu svari til fréttastofu og kallaði eftir því að eftirlit og geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsiskerfisins yrðu rannsökuð. Forstjóri Fangelsismálastofnunar sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að verklag yrði endurskoðað og leitað leiða til að bæta geðheilbrigðisþjónustu fanga. „Geðþjónustan er betri en hún var en hún er á engan hátt nægjanleg. Þú ert lokaður inni í klefa, þú ert einn með sjálfum þér, þú ert í aðstæðum, það er mikið af fíkniefnum. Þetta samansull af þessu og í svona hálfkæringi, það er ekki gengið í það sem þarf að ganga. Fangelsismál eru aftarlega hjá okkur. Þetta er ekki forgangsmál hjá okkur. Þannig er viðhorfið. Ef við ætlum að hugsa um fólk og vera samfélag þá þurfum við að huga að þessu miklu betur.“ Síðast var fjallað um andlát manns á Hólmsheiði árið 2023. Einnig var greint frá andláti tveggja manna á Litla-Hrauni árið 2024. „Mér verður, örugglega eins og flestum, ekki vel við. Þetta er sorglegt og ég hugsa alltaf um þessa sorgarsögu, um þessa löngu sögu. Oftar en ekki er saga þeirra sem enda í þessari stöðu svo þyrnum stráð og sorgleg. Mér finnst það miður. Ég held að við getum gert betur. Þegar þú ert kominn inn á stofnun eða við erum þar þá þurfum við að gera miklu betur. Fagmennska og miklu fleira. Það er svo margt, jafningjanálgun og annað.“ Fangelsismál Banaði dóttur sinni við Krýsuvíkurveg Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði aðfaranótt sunnudags hét Sigurður Fannar Þórsson. Hann afplánaði sextán ára dóm fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana við Krýsuvíkurveg í september árið 2024. Hann játaði sök í málinu á sínum tíma en bar fyrir sig minnisleysi. Hann hafði glímt við andleg veikindi um skeið. Sigurður var ekki í einangrun umrædda nótt og er talið að hann hafi svipt sig lífi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að fangelsi hér á landi séu ekki til betrunar. „Fangelsismál á Íslandi eru birtingarmynd þess að við erum ekki að betra fólk. Ef við horfum á þetta þannig að við ætlum ekki bara að loka fólk inni og refsa því. Síðan kemur þessi betrunarhugmynd. Við verðum í þeim veruleika sem við erum í núna að huga að því. Því það er mjög mikið af málum. Við erum ekki að senda fólk þangað til að fá hjálp og fleira sem ég held að flestir sem eru dæmdir í fangelsi þurfi á að halda. Það er kannski löng áfallasaga að baki. Þetta kemur ekki upp í einhverju tómarúmi. “ Lögmaður Sigurðar velti upp spurningum um aðbúnað og öryggi fanga í skriflegu svari til fréttastofu og kallaði eftir því að eftirlit og geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsiskerfisins yrðu rannsökuð. Forstjóri Fangelsismálastofnunar sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að verklag yrði endurskoðað og leitað leiða til að bæta geðheilbrigðisþjónustu fanga. „Geðþjónustan er betri en hún var en hún er á engan hátt nægjanleg. Þú ert lokaður inni í klefa, þú ert einn með sjálfum þér, þú ert í aðstæðum, það er mikið af fíkniefnum. Þetta samansull af þessu og í svona hálfkæringi, það er ekki gengið í það sem þarf að ganga. Fangelsismál eru aftarlega hjá okkur. Þetta er ekki forgangsmál hjá okkur. Þannig er viðhorfið. Ef við ætlum að hugsa um fólk og vera samfélag þá þurfum við að huga að þessu miklu betur.“ Síðast var fjallað um andlát manns á Hólmsheiði árið 2023. Einnig var greint frá andláti tveggja manna á Litla-Hrauni árið 2024. „Mér verður, örugglega eins og flestum, ekki vel við. Þetta er sorglegt og ég hugsa alltaf um þessa sorgarsögu, um þessa löngu sögu. Oftar en ekki er saga þeirra sem enda í þessari stöðu svo þyrnum stráð og sorgleg. Mér finnst það miður. Ég held að við getum gert betur. Þegar þú ert kominn inn á stofnun eða við erum þar þá þurfum við að gera miklu betur. Fagmennska og miklu fleira. Það er svo margt, jafningjanálgun og annað.“
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Fangelsismál Banaði dóttur sinni við Krýsuvíkurveg Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira