Handbolti

Hættur og farinn í meistara­nám til Banda­ríkjanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristófer Máni er hættur í handbolta í bili.
Kristófer Máni er hættur í handbolta í bili.

Handboltamaðurinn Kristófer Máni Jónasson leikur ekki með FH á næsta tímabili. Ástæðan er að hann er að fara í meistaranám til Bandaríkjanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fimleikafélaginu.

Þar segir að Kristófer haldi í sumar til Seattle í Bandaríkjunum í meistaranám í byggingar- og fasteignastjórnun. 

Máni gekk til liðs við FH frá Val í síðastliðinn október og leysti bæði stöðu vinstri hornamanns og skyttu enda örfhentur. Hann er uppalinn hjá FH en lék lengi vel fyrir Hauka. 

Hann var til að mynda þriðji markahæsti leikmaður FH í úrslitakeppninni með 36 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×