Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2026 10:01 Bergrós Björnsdóttir náði ekki markmiði sínu í hitanum í Madrid en fær annað tækifæri til að tryggja sér sæti á heimsleikunum seinna í þessum mánuði. @bergrosbjornsdottir Íslensku CrossFit-konunni Bergrós Björnsdóttur tókst ekki að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana í CrossFit á Spáni um helgina en fær engu að síður annað tækifæri til að tryggja sér sæti á heimsleikunum í fyrsta sinn í fullorðinsflokki. „
Æi maður. Þetta var vægast sagt erfið helgi,“ skrifaði Bergrós á samfélagsmiðla sína. Hún lenti í vandræðum eftir fyrstu grein mótsins. Andlega hliðin var aldrei vandamál „Andlega hliðin var aldrei vandamál hjá mér, hún var jafn skörp og alltaf og ég var áköf í að berjast. Líkaminn minn hafði bara ekkert afl eftir fyrstu greinina. Það svíður illa þegar allt er undir, en ég barðist allt til enda og er stolt af því,“ skrifaði Bergrós. „Til að gera langa sögu stutta gat ég hvorki gengið né talað um tíma. Blóðsykurinn minn sem og blóðþrýstingurinn mældist allt of lágur og ég missti meðvitund um stund,“ skrifaði Bergrós áður um atvikið. Flytja þurfti Bergrósu á nærliggjandi sjúkrahús og þótti ekki tilefni til frekara inngrips þegar þangað var komið. Hún gafst ekki upp og kláraði keppnina þar sem hún endaði í níunda sætinu. Hún á heiður skilinn fyrir það en því miður lenti hún í vandræðum í upphafi þar sem hún var að keppa í miklum hita ólíkt því sem hún er vön á Íslandi. Bergrós vakti einnig athygli á því að Heimsleikadraumurinn er ekki dáinn hjá henni. Þetta er ekki búið enn „Núna er kominn tími til að drífa sig úr þessum hita og undirbúa sig fyrir undanúrslitin á netinu. Þetta er ekki búið enn,“ skrifaði Bergrós. Það eru enn sjö sæti í boði hjá konunum í gegnum undanúrslitamót þar sem keppendur munu skila inn æfingum í gegnum netið. Mótið fer fram dagana 11. til 15. júní. Bergrós fær tíu daga til að safna kröftum og undirbúa sig fyrir þessi átök. Hún fær líka flotta kveðju frá umboðsmanninum Snorra Baron Jónssyni. „Þú hefur ansi margt til að vera stolt af og ballið er ekki búið ennþá. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þú neglir þetta í næstu viku. Allt í botn,“ skrifaði Snorri sem hefur séð marga skjólstæðinga sína tryggja sér sæti á heimsleikunum. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir)
CrossFit Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Sjá meira