Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 2. júní 2026 12:02 Þær undarlegu fréttir berast nú sem eldur í sinu um þjóðfélagið að það eigi að banna gamla fólkinu að kjósa eða það sem verra er að okkur beri skylda til að svara á ákveðinn hátt í ágúst til að eyðileggja ekki framtíðina fyrir ungu fólki! Og hverjir eru þessir gamlingjar? Jú, fólk 55 ára og eldra, fólk fætt fyrir 1970, fólk sem man tímana tvenna, ólst upp við frásagnir foreldra, afa og ömmu hvað það var stolt af sjálfstæðinu sínu að vera frjáls í sínu eign landi, við munum þorskastríðið við Breta þegar við færðum út landhelgina, munum þegar breskar freigátur og dráttarskip sigldu ítrekað á varðskipin okkar Þór, Tý og Óðin, hvernig Íslendingar stóðu á öndinni og ofbauð þessar aðfarir. Ég er fædd 1966 og er því orðin 60 ára og má því væntanlega ekki kjósa eða í versta falli „kjósa rétt”. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er þá væntanlega líka „of gömul“, fædd 1965, þessi meinta lýðræðisveisla er samt í hennar boði? Þegar við kaupum fasteign, bíl, fjárfestum eða bara skoðum banka og tryggingarfélög fyrir viðskipti okkar, við hvern tölum við þá, við hvern ráðfærum við okkur? Þegar þið eigiðvon á ykkar fyrsta barni og leitið svara um meðgönguna, fæðinguna, vandamál sem koma upp í uppeldinu og í veikindum, við hvern ráðfærið þið ykkur? Ef það á að halda veislu, baka köku, elda fínan mat við hvern talið þið? En þegar þið veljið ykkur námsbraut í hvaða skóla á að fara, til hvaða lands? Ég er búin að koma upp mínu barni og lifi nokkuð rólegu lífi „leiðinlegu“ myndu sumir segja, ég hef nógan tíma til að lesa skýrslur, flakka um á vef eu.com, leita mér upplýsinga hvort það sem haldið er fram sé rétt eða ekki, hvort sem það kemur frá ríkisstjórninni, ESB eða á samfélagsmiðlum. Ég skoða líka það sem kemur frá Já-fólkinu eins og Nei-fólkinu, sæki fundi. Ég læt ekki algóritmann ráða hvað ég sé og les, ég leita mér upplýsinga sjálf og ég veit að gervigreindin segir ekki alltaf rétt frá. Ég læt ekki aðra, ráðamenn né áhrifavalda mynda mér skoðanir heldur kynni mér málið og tek ákvarðanir út frá því. Ég hvet ykkur til að skoða málið vel „það er ekki allt gull sem glóir“ og enginn er alvitur. Já ég veit, við þetta gamla fólk erum alltaf að rausa í ykkur unga fólkinu, skiljum ekki út á hvað lýðræðisveislan gengur. Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB, og of gömul. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar