„Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júní 2026 12:38 Áslaug Arna í ræðustól Alþingis þegar hún þakkaði þingheimi fyrir síðustu tíu ár. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir ekkert til í því að hún setjist senn í ritstjórastól Morgunblaðsins. Áslaug gefur ekkert upp um næstu skref en hefur boðað vini og stuðningsmenn til veislu á morgun.
Áslaug tilkynnti í morgun í ræðustól Alþingis að hún hyggist segja af sér þingmennsku. Bjarki Sigurðsson fréttamaður ræddi við Áslaugu í beinni útsendingu frá Alþingi í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Mig langar að leggja mitt af mörkum með öðrum hætti og prófa nýja hluti. Ég er þrjátíu og fimm ára, búin að standa hér í þinginu í tíu ár og er bara spennt fyrir einhverju nýju.“ Áslaug segir ákvörðunina aðeins hafa legið fyrir skömmu áður en hún kom heim. Miklar umræður sköpuðust strax um hvað þingmaðurinn fyrrverandi tæki sér næst fyrir hendur. Var meðal annars rætt hvort Áslaug héldi næst upp í Hádegismóa þar sem ritstjórastóll hefur verið auður frá skyndilegu andláti Davíðs Oddssonar fyrsta mars síðastliðinn. Þar ættu Áslaugu að vera hæg heimatökin, tengsl Morgunblaðsins við Sjálfstæðisflokkinn eru öllum kunn, Áslaug hefur sjálf starfað þar og síðan skemmir eflaust ekki fyrir að faðir hennar, Sigurbjörn Magnússon, er stjórnarformaður útgáfufélags blaðsins, Árvakurs. „Það er ekkert til í því,“ sagði Áslaug, afdráttarlaus, þegar fréttamaður bar undir hana orðróminn. Áslaug hefur boðið vinum og stuðningsmönnum sínum til veislu á Parliament-hóteli við Austurvöll á morgun. „Ég ætla að hitta fólk á morgun og bjóða til smá veislu. Ég er búin að vera á þessum stað nú í tíu ár vegna fólksins í kringum mig sem hefur stutt mig og trúað á mig. Það er mitt heillaskref í stjórnmálum að eiga sterkt bakland og marga stuðningsmenn. Mig langar ekkert meira en að hitta þau og eiga góða stund.“ Ekkert sé þó ákveðið um hvort þar verði tilkynnt um næstu skref. Tilfinningar voru í hámarki þegar Áslaug tilkynnti um afsögn sína fyrr í dag. Hér má sjá myndaveislu Vísis frá þessari hjartnæmu stund: „Það var mjög falleg stund. Ég hef átt ótrúlega góð samskipti við þingmenn úr öllum flokkum. Við erum hér að spyrja okkur stórra spurninga og takast á um hvernig við getum gert betur fyrir Íslendinga alla.“ „Mér þótti vænt um það og ég kveð þingið líka með söknuði. Það er ekki sjálfsagt að fá að hafa áhrif á leikreglur samfélagsins.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Tengdar fréttir Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum. 3. júní 2026 11:21 Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki. 21. apríl 2026 14:56 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Sjá meira
Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum. 3. júní 2026 11:21
Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki. 21. apríl 2026 14:56