„Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júní 2026 23:32 Þóra Jóhanna er nýr yfirdýralæknir Matvælastofnunar. Vísir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, MAST, segir aðgerðir manns á Reykjabúi aðfaranótt mánudags ekki hafa neitt með dýravelferð að gera.
Maðurinn braust inn og flutti einhverja fugla út. Í stefnuyfirlýsingu hafi hann lýst aðgerðum sínum eiga að stuðla að dýravelferð. Þóra segir að þvert á móti valdi slíkar aðgerðir ótta, þjáningu og jafnvel dauða sem sé algjörlega andstætt dýravelferð. Þóra var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag auk Jóns Magnúsar Jónssonar bónda á Reykjabúi. Þóra sagði slík mál oft tilkynnt til þeirra en þetta tiltekna mál hafi ekki verið það. Þau vilji gjarnan fá tilkynningar og vera í sambandi við þolendur og lögreglu. Í svona innbroti sé illilega brotið á dýrum. „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr, það er verið að valda dýrum óþarfa ótta, þjáningu, sársauka, meiðslum og jafnvel á stóran hóp af dýrum að valda alvarlegum sjúkdómum,“ segir Þóra. Það séu miklar smitvarnir á svona búum og það sé ástæða fyrir því. Á Íslandi sé staðan einstök hvað varði sjúkdóma og miklu sé varið í að verja dýrin utanaðkomandi smitefnum. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir gott heilsufar,“ segir hún og að svona innbrot geti haft mjög alvarlegar afleiðingar á heilsu dýranna. Vond þróun Þóra segir þetta slæmar fréttir og slæma þróun. Það megi aldrei bitna á saklausum dýrum að fólk segi eitthvað um þessa búskaparhætti eða dýrahald. „Það verður að beina því áliti eða skoðun í annan farveg. Þetta er mjög vond þróun, að einhverjum detti virkilega í hug að koma svona fram við dýr sem eru í haldi.“ Spurð hvort hún óttist að þetta verði algengara segir Þóra þessi tvö tilvik eiga sér stað með stuttu millibili og þó svo að vel geti verið um sama einstakling að ræða í báðum tilvikum sé þetta eitthvað sem þurfi að beina sjónum að. „Þetta er mjög vond þróun ef það er að fara þessa leið,“ segir hún og að þetta sé ekki rétta leiðin til að berjast fyrir betri velferð dýranna. Þetta valdi þeim ótta, þjáningu og dauða í sumum tilfellum. Þóra segir það fest í lög að tryggja velferð dýra á slíkum búum og í lögum sé til dæmis talað um smitvarnir, umönnun og aðbúnað og MAST þrýsti á að sem best sé tekið mið af velferð dýranna þannig að þau hafi það pláss sem þau þurfa, umhverfisauðgun og aðbúnað sem uppfyllir þeirra þarfir. Þóra segir virkt eftirlit, sem sé áhættumiðað, og það sé þannig mest þar sem sé minni sjáanleiki eins og á fugla- og svínabúum. Erfiðara sé til dæmis að treysta á ábendingar frá almenningi um aðbúnað þessara dýra vegna þess að búin eru lokuð. Hún segir að í tilfelli svína myndi MAST til dæmis vilja sjá að þau hefðu meira pláss en að ekki sé hægt að ganga lengra en reglugerðir sem snúi að þessum búskap ganga. Fljótur að verki Jón Magnús, bóndi á Reykjabúi, sagði í viðtali sínu við Reykjavík síðdegis að maðurinn sem stóð að innbrotinu hafi verið fljótur að verki. Hann hafi farið inn í öll húsin og reynt að reka fuglana úr húsinu um miðja nótt. Hann hafi reynt að halda á þeim og svo skilið eftir bréfið þar sem hann vísaði í dýravelferð. Jón segir aðgerðir hans ekki eiga neitt skylt við dýravelferð. Hann segir að í bréfinu hafi hann talað um að dýrin ættu að vera úti. Bréfið hafi verið tætt af kalkúnunum því það hafi verið skilið eftir þar. Jón segir að vegna umgengnisreglna hafi þurft að aflífa fuglana og ekki hafi verið hægt að setja þá aftur inn. Það séu strangar reglur um skóbúnað og klæðnað vegna þess að um er að ræða matvælaframleiðslu. Hann segir að þau hafi verið rétt á eftir honum á staðnum og reynt að skapa ró. Hættan sé á að maðurinn hafi borið einhverja sjúkdóma inn til fuglanna og þá þurfi þeir allir að fara „á haugana“ og hann átti sig eflaust ekki á því. Endurskoða varnir Jón segir líklega um sama aðila að ræða og braust inn til Stjörnugríss. Lögregla hafi fengið myndböndin og málið sé til rannsóknar hjá þeim. Það hafi verið til umræðu hjá fyrirtækinu að birta þau í hverfagrúppu á Facebook til að kanna hvort einhver þekki til mannsins. Annars sé málið til rannsóknar hjá lögreglunni. Hann segir að fyrirtækið endurskoði nú varnir sínar í kjölfar þessa innbrots. Hann segir starfsfólk og fjölskylduna eyðilagða yfir þessu.
Mosfellsbær Lögreglumál Dýr Dýraheilbrigði Fuglar Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sjá meira