„Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Sindri Sverrisson skrifar 4. júní 2026 11:01 Leikmenn Stjörnunnar hafa engan áhuga á að missa Jökul Elísabetarson sem þjálfara, segir Guðmundur Baldvin Nökkvason. Samsett/Diego/Ernir Guðmundur Baldvin Nökkvason segir að leikmenn Stjörnunnar viti það manna best að þeir geti gert mun betur en þeir hafi sýnt hingað til í Bestu deildinni í sumar. Hann segir allt liðið standa við bakið á þjálfaranum Jökli Elísabetarsyni.
Í hálfleik gegn Þór á sunnudaginn var Stjarnan í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti, en útlitið er aðeins skárra eftir þrjú mörk í seinni hálfleiknum og 3-1 sigur Stjörnumanna. Þeir eru engu að síður í 9. sæti en þó aðeins fimm stigum frá 4. sæti auk þess að vera komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeir mæta Aftureldingu, efsta liði Lengjudeildarinnar. „Já, bara frekar döpur byrjun hjá okkur,“ segir Guðmundur Baldvin um stöðuna nú þegar stutt frí er í gangi vegna landsleikja. Það frí nýtti miðjumaðurinn til þess að fara til Vestmannaeyja og á sjó, áður en æfingar hefjast aftur af fullum krafti á laugardaginn. „Við byrjuðum reyndar fyrstu tvo leikina á sigrum en svo kemur einhver taphrina í kjölfarið og það tekur ógeðslega mikið á alla í liðinu að tapa svona, þegar við erum með rosalega gott lið. Síðan spilum við gegn KR í tveimur skemmtilegum leikjum og erum frekar solid, og fórum áfram í bikarnum sem er mjög mikilvægt. En þetta hefur verið mjög léleg byrjun og við í liðinu vitum manna best að við eigum að vera búnir að gera mikið betur,“ segir Guðmundur Baldvin. Slæmt gengi Stjörnunnar hefur gert að verkum að sífellt er rætt um að þjálfari liðsins, Jökull Elísabetarson, þyki afar valtur í sessi. Afstaða Guðmundar Baldvins er hins vegar skýr: „Vonandi verður hann áfram. Allt liðið bakkar hann upp og það vill enginn í hópnum sjá hann fara.“ „Ég er ekkert sáttur við það“ Guðmundur Baldvin, sem valinn var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra, lítur hins vegar í eigin barm og er staðráðinn í að gera betur í næstu leikjum. „Það var sterkt að vinna fyrir norðan því í hálfleik leið manni smá eins og þetta væri ekki okkar dagur, því við fengum töluvert af færum. Framherjinn okkar skoraði ekki úr þeim færum en smurði hann svo bara upp í skeytin af þrjátíu metrum í staðinn… Ég er búinn að vera undir pari og flestallir í liðinu einnig. Ég er ekkert sáttur við það. Númer eitt, tvö og þrjú er að liðinu gangi vel. Ég á mikið inni og vonandi næ ég að koma því á framfæri og hjálpa liðinu að bæta ofan á það sem við höfum verið að gera.“
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira