Keili formlega slitið Agnar Már Másson skrifar 3. júní 2026 16:04 Keilir er starfræktur í Reykjanesbæ. Vísir/Arnar Félaginu Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hefur formlega verið slitið en námsbrautir skólans hafa flestar verið færðar undir hatta annarra námsstofnana. Háskólabrú Keilis heldur áfram undir Háskóla Íslands.
Greint er frá því í Lögbirtingablaðinu að hluthafar einkahlutafélagsins Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hafi tekið ákvörðun þann 12. maí um að slíta félaginu. Ríkissjóður hefur frá 2020 átt 51 prósents hlut í Keili og restin skipst á sveitarfélögin á Suðurnesjum. Námsbrautir Keilis hafa á undanförnum árum færst smátt og smátt undir aðrar námsstofnanir. Árið 2023 færðust námsbrautir Flugakademíu Íslands, sem var rekin af Keili, undir Flugskóla Reykjavíkur og Flugakademían var svo tekin til gjaldþrotaskipta 2024. Svo tók Fjölbrautaskóli Suðurnesja sömuleiðis yfir nokkrar námsbrautir hjá Keili, nánar tiltekið einka- og styrktarþjálfaranám, stúdentsbraut í tölvuleikjagerð og fótaaðgerðafræði. Í nóvember í fyrra, 2025, var svo tilkynnt að Háskólabrú Keilis, sem hafði verið hryggjarstykki í rekstri Keilis, yrði færð undir Háskóla Íslands og heyrir hún nú undir menntavísindasvið skólans. Á þeim tíma kom fram í fréttatilkynningu: „Þar sem stjórnvöld stefna að því að leysa hlutafélagið Keili upp skapaðist óvissa um framtíð Háskólabrúarinnar og því var starfshópi á vegum HÍ falið að greina stöðu mála í samráði við forstöðumann Keilis og heimafólk og skoða mögulegar leiðir til að eyða óvissu um rekstur Háskólabrúarinnar.“
Framhaldsskólar Háskólar Suðurnesjabær Reykjanesbær Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira