Körfubolti

Eftir­spurnin sprengir skalann: Ó­dýrasti miðinn kostar hátt í milljón

Sindri Sverrisson skrifar
Fræga fólkið lætur sig ekki vanta í Madison Square Garden. Hér eru leikararnir Jason Bateman og Jason Sudeikis mættir á Knicsk-leik.
Fræga fólkið lætur sig ekki vanta í Madison Square Garden. Hér eru leikararnir Jason Bateman og Jason Sudeikis mættir á Knicsk-leik. Getty/Sarah Stier

Það er vægast sagt gríðarleg eftirspurn eftir miðum á leik þrjú í einvígi New York Knicks og San Antonio Spurs um NBA-meistaratitilinn, enda New York-búar beðið alla þessa öld eftir að sjá Knicks í úrslitum.

Eftirspurnin minnkaði ekkert við það að Knicks skyldu vinna fyrsta leik einvígisins í gærkvöld, 105-95, eftir að hafa lent 14 stigum undir. Sá leikur fór fram í San Antonio og einnig næsti leikur, á föstudagskvöldið. En það er nánast slegist um miða á fyrsta heimaleik Knicks sem verður í Madison Square Garden á mánudagskvöld.

Samkvæmt Daily Mail eru ódýrustu miðarnir á sölusíðum nú á 7.000 dollara, eða rúmar 860.000 krónur, en hægt að fá miða við völlinn á allt að 158.000 dollara, eða 20 milljónir króna.

Það hefur ekki verið spilaður leikur í úrslitum NBA í Madison Square Garden síðan árið 1999 og Knicks eiga auk þess möguleika á að landa meistaratitlinum í fyrsta sinn í sögunni.

Gert er ráð fyrir því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði viðstaddur leikinn á mánudaginn sem og borgarstjórinn Zohran Mamdani.

Miðarnir á heimaleiki San Antonio eru umtalsvert ódýrari þó að þeir kosti sitt. Samkvæmt Daily Mail eru ódýrustu miðarnir á 900 dollara eða rúmlega 110 þúsund krónur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×