Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. júní 2026 15:19 Yfirlitsmynd af slysstað sýnir leið bílsins. Gulur hringur er þar sem bíllinn stöðvaðist á hvolfi. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Karlmaður á áttræðisaldri sem lést í bílslysi á gatnamótum Sundagarða og Vatnagarða í september í fyrra var án ökuréttinda og hafði verið metinn óhæfur til aksturs vegna heilsufars. Maðurinn var auk þess ekki í belti þegar slysið varð og telur Rannsóknarnefnd samgönguslysa að bílnum hafi sennilega verið ekið yfir leyfðum hámarkshraða.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nefndarinnar. Maðurinn lést eftir að bílnum var ekið yfir Sundagarða á gatnamótum Sundagarða og Vatnagarða og fram af klettabrún þann 23. september 2025. Bíllinn féll um sjö metra niður á athafnasvæði Hringrásar hf og endaði þar á hvolfi. Tilkynnt var um slysið klukkan 21:02. Þá segir í skýrslunni að hinn 75 ára ökumaður hafi verið einn í bílnum. Hann hafi hlotið fjöláverka og látist á slysstað en hann var ekki spenntur í öryggisbelti. Þegar slysið varð var vegurinn blautur og rigning. Myrkur var, en götulýsing var til staðar. Hiti var um tólf gráður og vindur hægur. Á slysstað voru Vatnagarðar með eina akrein í hvora akstursátt. Hámarkshraði á báðum götunum var 50 km/klst og voru þær með bundið slitlag, malbik. Sundagarðar voru með eina akrein til suðausturs og tvær akreinar til norðvesturs. Bílnum var ekið þvert yfir Vatnagarða, umferðareyju, grasbala og þar fram af klettabrún. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Segir í skýrslunni að fyrirliggjandi vitnisburður bendi til þess að bílnum hafi verið ekið á miklum hraða til norðvesturs eftir Vatnagörðum skömmu áður en slysið varð. Eftir að bíllinn hafi fallið niður um sjö metra hafi framendi bílsins fyrst lent á steyptum vegg sem brotnaði að hluta undan bílnum. Bíllinn hafi endað á hvolfi inni á fyrrum athafnasvæði Hrngrásar en fjarlægð frá fyrstu umferðareyjunni sem bílnum var ekið yfir var um 25 metrar. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur meginorsök slyssins hafa verið þá að ökumaður hafi verið án ökuréttinda og ekki hæfur til að stjórna bíl. Nokkrum dögum fyrir slysið hafi læknir metið ökumanninn óhæfan til aksturs vegna heilsufars. „Í kjölfarið voru ökuréttindi hans afturkölluð til bráðabirgða og ökuskírteini tekið í vörslu lögreglu. Þrátt fyrir afturköllun ökuréttinda hafði ökumaðurinn lýst yfir vilja til að halda áfram akstri. Hann ók á ný þrátt fyrir að hafa verið metinn óhæfur til aksturs. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að heilsufar ökumanns og skortur á innsæi á eigin aksturshæfni hafi átt verulegan þátt í því að hann hóf akstur.“ Bíllinn á hvolfi á slysstað. Rannsóknarnefnd samgönguslysa
Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira