Hátt á þriðju milljón á mánuði Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. júní 2026 15:32 Berglind Ósk Guðmundsdóttir er nýr bæjarstjóri á Akureyri. Vísir/Einar Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr bæjarstjóri hefur gert ráðningarsamning við Akureyrarbæ. Föst dagvinnulaun eru rúmlega 1,8 milljónir króna en við það bætist 45% stjórnendaálag. Alls nema launin rúmum 2,6 milljónum króna.
Samningurinn var undirritaður á þriðjudaginn og gildir til loka kjörtímabilsins. Föst dagvinnulaun eru samkvæmt samningnum 1.804.114 krónur á mánuði. Þau taka breytingum í samræmi við hækkun taxta í reglum um launakjör og starfsaðstæður bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ dagsettum 25. ágúst 2022. Í launum bæjarstjóra er innifalin greiðsla fyrir nefndastörf og setu í bæjarstjórn og ekki er greitt aukalega fyrir nefndastörf eða setu í vinnuhópum á vegum Akureyrarbæjar. Bæjarstjóri fær greitt stjórnendaálag sem nemur 45% af mánaðarlaunum. Í samningnum segir að álagið sé þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og hvað annað vinnuframlag sem til fellur utan dagvinnutíma. Greitt er 13,04% orlof á stjórnendaálag. Launin nema því alls 2.615.965 krónum. Ekki er greitt sérstaklega fyrir setu á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs eða öðrum fundum fastanefnda Akureyrarbæjar. Orlof er 30 virkir dagar á ári. Bæjarstjóri fær greitt fyrir akstur í þágu vinnuveitanda samkvæmt skráningu og Akureyrarbær greiðir ferðakostnað á ferðalögum á vegum bæjarins. Einnig greiðir bærinn kostnað vegna notkunar á farsíma, líf- og slysatryggingu og leggur til farsíma og fartölvu til notkunar í störfum sínum.
Akureyri Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Kjaramál Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira