Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Valur Páll Eiríksson skrifar 5. júní 2026 13:45 Sebastian Haugland (t.h.) er farinn heim. Sigurður Heiðar, þjálfari Þórs, glímir við töluverð skörð í hópi sínum þessi dægrin. Samsett/Vísir/Diego Sebastian Haugland, norskur framherji Þórs á Akureyri, er farinn heim til Noregs af persónulegum ástæðum og mun ekki spila aftur fyrir félagið. Þetta staðfestir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins.
Haugland fór vel af stað með Þór og skoraði stórglæsilegt mark í 1-0 sigri á Fram í þriðju umferð deildarinnar. Fjölskylda hans varð aftur á móti fyrir áfalli á dögunum og hefur Haugland því haldið heim á leið til Noregs. Í samtali við Vísi segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, að hann búist ekki við að Haugland komi aftur til liðsins. Þór hafði verið í framherjaleit í nokkrar vikur þegar félagið samdi við Haugland og miklar vonir bundnar við hann. Nú er hins vegar útlit fyrir að liðið verði án hans og geti ekki fengið inn mann í hans stað fyrr en félagsskiptaglugginn opnar þann 15. júlí. „Þetta er engin draumastaða en almennt er staðan á hópnum heilt yfir mjög góð. Við erum með breiðan hóp og það hefur verið vesen að velja lið. Nú þurfa bara aðrir að stíga upp,“ segir Sigurður Heiðar við Vísi. Ofan á brotthvarf Haugland er Christian Greko Jakobsen í tveggja leikja banni þegar landsleikjahléinu lýkur og missir því af leikjum Þórs við ÍBV og FH um miðjan júní. Þegar hafði Isaac Atanga, lykilmaður í liðinu, ökklabrotnað og spilar ekki meira á leiktíðinni. Atli Sigurjónsson tognaði aftan í læri og bættist á meiðslalista Þórs.VÍSIR / DIEGO Þar að auki er Atli Sigurjónsson tognaður aftan í læri og verður frá um hríð. Það eru því fjórir lykilmenn hjá Þórsurum frá. „Þetta er ekki ídealt og við þurfum að bregðast við þessu. Að missa tvo menn, sem áttu að vera aðalkallarnir. Þannig að við munum reyna að fá framherja og kantmann,“ segir Sigurður sem þarf þó að bíða fram í miðjan júlí til að bæta við hópinn. Þórsarar hafa ekki unnið leik síðan Haugland tryggði liðinu sigur á Fram í þriðju umferðinni. Síðan hefur liðið tapað sex leikjum í röð og er með sex stig í tíunda sæti. Algjörir lykilleikir eru fram undan eftir hlé, við ÍBV og FH, sem eru einu tvö liðin sem eru neðar en Þór í töflunni.
Þór Akureyri Besta deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira