Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2026 14:51 Hildur Antonsdóttir er á miðjunni gegn Úkraínu rétt eins og þegar Ísland vann 1-0 sigur á Laugardalsvelli í apríl. vísir/Diego Þorsteinn Halldórsson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Úkraínu í dag í lykilleik í baráttunni um að komast á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu 2027.
Ísland er án Sveindísar Jane Jónsdóttur og eina mannabreytingin á byrjunarliðinu frá 1-0 sigri Íslands gegn Úkraínu í apríl er sú að Emilía Kiær Ásgeirsdóttir kemur inn í stað Sveindísar. Með Emilíu í fremstu víglínu verða Sandra María Jessen og Thelma Karen Pálmadóttir en fyrri leikurinn við Úkraínu var einmitt fyrsti og þar til nú eini leikur hinnar 18 ára Thelmu Karenar í byrjunarliðinu. Byrjunarlið Íslands: Mark: Cecilía Rán Rúnarsdóttir Vörn: Guðrún Arnardóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sædís Rún Heiðarsdóttir Miðja: Hildur Antonsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir Sókn: Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Thelma Karen Pálmadóttir, Sandra María Jessen Varamenn: Telma Ívarsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir, Arna Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir, Diljá Ýr Zomers, Birta Georgsdóttir, Hlín Eiríksdóttir, María Catharina Ólafsdóttir Gros, Ída Marín Hermannsdóttir, Linda Líf Boama, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir. Ísland er með 22 manna hóp í stað 23 þar sem Hafrún Rakel Halldórsdóttir meiddist. Jelena Tinna Kujundzic kemur inn í hennar stað fyrir leikinn við Spán á þriðjudag. Leikurinn í dag fer fram í Mielec í Póllandi, vegna stríðsins í Úkraínu, og hefst klukkan 16 að íslenskum tíma. Ísland vann 1-0 þegar liðin mættust á Laugardalsvelli í apríl og er með þrjú stig í riðlinum en Úkraína án stiga. England er efst með 12 stig og Spánn með 9 stig en þau lið mætast á Spáni í kvöld. Lokaumferð undankeppninnar er svo á þriðjudag þegar Ísland tekur á móti Spáni og England á móti Úkraínu. Efsta lið riðilsins kemst beint á HM, liðin í 2.-3. sæti fara í umspilsleið 1 en neðsta liðið í umspilsleið 2 sem er umtalsvert erfiðari en leið 1, eins og lesa má nánar um hér:
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Sjá meira