Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 6. júní 2026 14:00 Ásdís og Orri við undirritun sáttmálans í dag. aðsend Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi sínu í Kópavogi. „
Meirihlutasáttmálinn byggir á sjö megináherslum sem fela í sér um fimmtíu og fimm verkefni sem sett verða í forgang á kjörtímabilinu, með það að markmiði að einfalda daglegt líf íbúa, bæta þjónustu og gera góðan bæ enn betri fyrir komandi kynslóðir.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokkunum en nýr meirihluti var kynntur á blaðamannafundi í Kópavogi klukkan tvö. Farsælt samstarf Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum og fékk sex fulltrúa kjörna. Flokkurinn hefði því getað myndað hreinan meirihluta en ákvað að bjóða Framsóknarflokki til áframhaldandi samstarfs. Framsókn tapaði fylgi milli kosninga og er oddviti flokksins, Orri Hlöðversson, eini kjörni fulltrúi flokksins í bæjarstjórn. „Það má í raun segja að eftir að hafa rætt við mitt fólk þá var einhugur hjá okkur að halda áfram samstarfi við Framsóknarflokkinn og einkum Orra. Þetta hefur verið mjög farsælt samstarf, það hefur gengið vel og hópurinn er samhentur. Við erum með áþekkar áherslur og teljum að það sé til hagsbóta fyrir Kópavog og Kópavogsbúa að við höldum áfram að vinna að góðum verkum saman,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir í samtali við fréttastofu. Orri Hlöðversson verður áfram í meirihluta.vísir/vilhelm Áþekkar áherslur Aðspurð hvort að einhver mál Framsóknar fái brautargengi sem ekki voru á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins segir Ásdís að áherslur Orra og hennar hafi verið mjög áþekkar. Samkvæmt meirihlutasáttmála flokkanna verður áhersla lögð á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem afraksturinn skili sér til heimila í formi betri þjónustu og lægri skatta, þar á meðal fasteignagjalda sem meirihlutinn leggur áherslu á að verði áfram þau lægstu meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hitaveita bæjarins „Við viljum kanna möguleika á að byggja upp okkar eigin hitaveitu og þannig sjáum við fram á að geta lækkað hitaveitukostnað Kópavogsbúa,“ segir Ásdís. Þá mun meirihlutinn standa vörð um séreignastefnuna ásamt því að styðja við tekjulágar fjölskyldur í félagslegu húsnæði til að kaupa eigið húsnæði þegar aðstæður leyfa. „Og gæta hagsmuna bæði í uppbyggingu húsnæðis sem og samgangna sem er framundan á höfuðborgarsvæðinu og standa þar vörð um hagsmuni Kópavogsbúa.“ Enn meiri sókn í grunnskólamálum Í skóla- og fjölskyldumálum er lögð áhersla á að skólar Kópavogs séu í fremstu röð. Meðal verkefna er að fjölga faglærðum grunnskólakennurum, tryggja nemendum á unglingastigi aðgang að fartölvum, efla íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna og bjóða heimgreiðslur frá tólf mánaða aldri. Haldið verði áfram með Kópavogsmódelið í leikskólamálum og það þróað enn frekar. Ásdís verður áfram bæjarstjóri.vísir/vilhelm „Öflugt íþróttalíf er meðal þess sem Kópavogsbúar eru hvað stoltastir af. Áfram verður áhersla lögð á að bæta og byggja upp aðstöðu til að mæta þörfum barna og ungmenna í bænum. Frístundastyrkur mun hækka, helgaropnanir í sundlaugum munu lengjast og möguleiki kannaður á nýjum golfvelli í Kópavogi,“ segir í tilkynningu. Áfram verði lögð áhersla á aukna hreyfingu, bætta líðan og aukið sjálfstæði eldri borgara með því að styðja við heilsueflingarverkefni fyrir eldri borgara. „Aðrar áherslur snúa meðal annars að fallegum bæjarbrag og framsýnu skipulagi, öruggum og greiðum samgöngum fyrir alla ferðamáta, auknum lífsgæðum og bættri lýðheilsu, vernd grænna svæða og öflugu menningarlífi, svo sem með árlegri Kópavogsbæjarhátíð.“ Með ríkan stuðning frá Kópavogsbúum Ásdís kveðst spennt fyrir framhaldinu. „Okkur finnst mikilvægt að halda áfram þessu farsæla samstarfi í ljósi þess að það hefur gengið vel. Við fengum og erum með ríkjandi stuðning frá Kópavogsbúum og það skiptir auðvitað miklu máli fyrir okkur og þau verkefni sem eru framundan. Við ætlum að halda áfram að byggja upp okkar öfluga bæ og tryggja að Kópavogur verði áfram í sókn.“
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira