Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júní 2026 16:29 Rósa Björk Brynjólfsdóttir er formaður Vinstri grænna. Innsent Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) hélt í dag flokksráðsfund sinn. Áherslumál voru málefni vinnumarkaðarins og umhverfismál. Rósa Björk Brynjólfsdóttir flutti ræðu í upphafi fundar.
Rósa varaði við þeirri hægribylgju sem reis sextánda maí síðastliðinn í sveitarstjórnarkosningum. „Það er engin tilviljun að þau mál sem fyrst eru látin víkja þegar hægrið sækir fram eru einmitt mannréttindamál, umhverfismál og félagslegt réttlæti. Ég trúi því að það sé til stór hópur fólks á Íslandi sem vill samfélag sem byggir á samkennd fremur en tortryggni, samvinnu fremur en sundrungu og samfélagslegri ábyrgð fremur en skammtímahugsun einstaklingshyggjunnar.“ Rósa lagði í ræðu sinni meðal annars áherslu á þau áhrif sem nýkjörnir fulltrúar hreyfingarinnar í sveitarstjórnum geta haft. Innsent Það sé nú á ábyrgð VG að spyrna við sem málsvari félagslegs réttlætis, umhverfisverndar og mannréttinda. „Við erum mótvægið við pólitík einstaklingshyggju og einkavæðingar, ágengrar nýtingar náttúrunnar og virðingarleysis fyrir mannréttindum. Við stöndum með friði í heimi sem aldrei hefur séð fleiri stríð.“ Líf Magneudóttir er fulltrúi VG í borgarstjórn Reykjavíkur. Innsent Vinstri græn þurfi að benda á leiðina fram á við, ekki bara vera á móti. „Verkefni okkar er að sýna að önnur leið er möguleg og hún er mun meira aðlaðandi en fyrirtækjaleikskólar eða umferðarteppur mengandi einkabíla.“ Leggst gegn brottfararbúðum Þá skaut Rósa föstum skotum að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og áformum hennar um að koma á fót svokölluðum brottfararbúðum. „Þegar stöðugt er veist að mannréttindum fólks á flótta. Á tímum þegar ríkisstjórn Íslands býr til brottvísunarbúðir fyrir fólk sem leitar eftir alþjóðlegri vernd og vill ekki láta reka sig burt. Þegar börn og fullorðnir eru frelsissvipt á Íslandi og sett í búðir sem einhvern tíma hefðu verið nefndar eitthvað annað en brottvísunarbúðir.“ Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM, leiðist ekki að ræða vinnumarkaðsmál á laugardagsmorgni. Með henni á myndinni eru Finnbjörn Hermannsson, formaður ASÍ, og Bjarki Hjörleifsson, varaformaður VG.Innsent VG hafi sigrast á úrtöluröddum Rósa segir VG hafa sigrast á úrtöluröddum sem haldið hefðu fram að VG myndi ekki geta boðið fram í sveitarstjórnarkosningum. „Úrslit sveitarstjórnarkosninganna voru önnur en þessar úrtöluspár og eru staðfesting á því að Vinstri græn eru þróttmikil stjórnmálahreyfing með sterkar rætur í samfélögum víða um land.“ Hreyfingin hafi bætt við sig fylgi á Akureyri og í Múlaþingi og í Fjallabyggð og Borgarbyggð hafi hún tekið þátt í sameiginlegum framboðum sem nú væru hluti meirihlutasamstarfs. Í Reykjavík hafi síðan Vinstrið, sameiginlegt framboð VG og Vors til vinstri, fengið níu komma fimm prósent og tvo fulltrúa kjörna.
Vinstri græn Umhverfismál Mannréttindi Tengdar fréttir Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök. 17. maí 2026 08:59 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök. 17. maí 2026 08:59