Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 11:05 George Russell klórar sér í höfðinu. Joe Portlock/Getty Images George Russell er undrandi á sjálfum sér eftir tímatökuna fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó. Hann skilur hreinlega ekkert í því hvað hann er hægur miðað við liðsfélaga sinn Kimi Antonelli.
Antonelli átti besta tímann og verður á ráspól þegar kappaksturinn hefst á eftir. Russell keyrði samskonar Mercedes bíl en varð í sjötta sæti tímatökunnar, 0.4 sekúndum á eftir Antonelli. „Ég veit ekki alveg hvað er í gangi,“ sagði Russell við Sky Sports. Russell vann fyrstu keppni tímabilsins og sprettkeppnina í annarri keppni tímabilsins en hefur ekki fagnað sigri síðan. „Byrjun ársins var bara auðveld. Hver einasti hringur sem ég keyrði, hvort sem það var á æfingu, í sprettinum, tímatökunni, allt gekk upp. Síðustu þrjár keppnir hefur ekkert gengið upp… Þangað til ég geri breytingar mun það halda áfram að vera þannig.“ Russell átti frábært tímabil í fyrra en segir breytingar á Mercedes bílnum hafa haft áhrif á hann. „Það eru klárlega hlutir sem hafa breyst og henta mínum ökustíl ekki eins vel og í fyrra. Við Kimi keyrum ekki eins. Ég ætla ekki að fara út í smáatriðin en það er augljóst að í fyrra hentaði bíllinn mér vel en í ár hentar hann honum betur. Þannig að ég þarf að aðlaga mig. Ég skil samt ekki hvernig tímabilið gat byrjað svona vel. Ég veit það ekki, ég er svolítið ringlaður bara.“ Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Akstursíþróttir Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira