Handbolti

Lið Blæs bjargaði læri­sveinum Rúnars

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rúnar Sigtryggsson var látinn fara frá Leipzig í fyrra en fyrrum lærisveinar hans komu liðinu sem hann stýrir í dag, Wetzlar, til bjargar. 
Rúnar Sigtryggsson var látinn fara frá Leipzig í fyrra en fyrrum lærisveinar hans komu liðinu sem hann stýrir í dag, Wetzlar, til bjargar.  Getty/Alex Grimm

Þrátt fyrir að vera fallið úr þýsku úrvalsdeildinni í handbolta tók Leipzig sig til og vann Minden í lokaumferðinni. Það þýðir að Minden fellur með Leipzig niður um deild en Wetzlar heldur sínu sæti.

Lokaumferð þýsku deildarinnar fór fram í dag og spennan var hvað mest í fallbaráttunni.

Nýkrýndir meistarar frá Magdeburg mættu Wetzlar, lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar, og unnu 30-31 sigur á útivelli.

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu sitt hvor 5 mörk fyrir Magdeburg. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir meistarana.

Wetzlar sá því ekki sjálft um að bjarga sér frá falli. Leipzig kom liðinu til bjargar með því að vinna Minden með einu marki, 26-25.

Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Wetzlar og þakkar Leipzig væntanlega fyrir þetta, þó hann hafi verið rekinn frá félaginu í fyrra.  

Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í sigri Leipzig á leiðinni niður um deild.

Sviptingar urðu svo á stöðutöflunni þegar Kiel tapaði 31-34 fyrir Lemgo. Með sigrinum tókst Lemgo að taka síðasta lausa Evrópudeildarsætið og skilja þýska stórveldið eftir í sárum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×