Taka L-listann með sér í meirihluta Agnar Már Másson skrifar 7. júní 2026 18:53 Birgir Örn Ólafsson (E), formaður bæjarráðs, Björg Ásta Þórðardóttir sveitarstjóri (D) og Kristinn Björgvinsson (L), forseti bæjarstjórnar. Aðsend Ný þriggja flokka sveitarstjórn hefur verið mynduð í Vogum þrátt fyrir að meirihlutinn hafi rétt svo haldið velli í liðnum kosningum. D-listinn og E-hafa ákveðið að taka L-listann með sér í meirihlutasamstarfið.
Greint er frá því í tilkynningu að D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi listi Strandar og Voga og L-listi Listi fólksins hafi myndað nýjan fimm fulltrúa meirihluta í Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans, verður bæjarstjóri sveitarfélagsins. Birgir Örn Ólafsson hjá E-listanum verður formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson hjá L-listanum verður forseti bæjarstjórnar. Alls eru sjö manns í sveitarstjórn Voga en í sveitarstjórnarkosningunum í maí hélt D-listinn sínum þremur fulltrúum, en E-listinn og L-listinn hlutu einn hvor. A-listinn Fyrir samfélagið hlaut þá tvo fulltrúa. Á liðnu kjörtímabili voru E-listinn og D-listinn í sex manna meirihluta og reyndar hefðu flokkarnir getað haldið meirihlutasamstarfi sínu áfram þrátt fyrir að E-listinn hafi misst tvo menn milli kosninga. Þeir hafa þó ákveðið að taka L-listann með sér í samstarfið. Í fréttatilkynningu skrifa meirihlutaflokkarnir að byggja á þeim grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því samstarfi sem tókst um verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verði horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa. Samstarfið byggi á málefnasamningi sem miði að því að styrkja sveitarfélagið til framtíðar, efla þjónustu í heimabyggð, styrkja innviði, styðja við fjölskyldur og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulíf og félagsstarf í vaxandi og öflugu samfélagi. „Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar sýndu okkur í kosningunum og göngum auðmjúk en ákveðin til verka. Framundan eru stór verkefni en líka mikil tækifæri. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á góða samvinnu, skýra forgangsröðun, gott samtal við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins,“ er haft eftir Björgu Ástu Þórðardóttur, verðandi bæjarstjóra. Björg var í skamma stund framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en hætti nokkrum mánuðum síðar til þess að fara í framboð í heimabænum. Málefnasamningur meirihlutans verður kynntur nánar á næstu dögum, samkvæmt tilkynningunni.
Vogar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira