Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Kjartan Kjartansson skrifar 8. júní 2026 10:32 David Lammy (t.h.) og J.D. Vance (t.v.) hafa náð vel saman þrátt fyrir ólíkar stjórnmálaskoðanir. Lammy notaði samband þeirra til þess að gera Vance ljóst að hann fiskaði í gruggugu vatni með ummælum sínum um dráp á breskum unglingi. AP/Suzanne Plunkett Varaforsætisráðherra Bretlands segist hafa gert J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, ljóst að það hafi verið rangt af honum að kenna innflytjendum um dráp á ungum manni þar. Bandaríkjastjórn hefur notað drápið sem skotfæri í undirróður gegn innflytjendastefnu Evrópuríkja.
Vance tengdi dráp á Henry Nowak, átján ára gömlum hvítum háskólanema, í Southampton við meinta „fjöldainnrás innflytjenda“ og sagði að Bretar ættu að fyllast „réttlátri reiði“ yfir því um helgina. Setti hann það einnig í samhengi við meinta pólitík „sjálfshaturs“ á Vesturlöndum. David Lammy, dómsmála- og varaforsætisráðherra Bretlands, segir að þeir Vance hafi rætt saman í síma í gær. Samtal þeirra hafi verið „kröftuglegt“. Í því hafi Lammy sagt bandaríska varaforsetanum að það hafi verið rangt af honum að kenna innflytjendum um dauða Nowak. „Við áttum viðkunnanlegt samtal vegna þess að við eigum samband okkar á milli en ég vildi gera honum ljóst að ég væri ósammála sumum þeirra staðhæfinga sem hann hélt fram og að kynna honum staðreyndir málsins,“ sagði Lammy við Sky-fréttastöðina. Á meðal þessara staðreynda sem Lammy reyndi að útskýra fyrir Vance var að morðingi Nowak væri breskur og að hann væri þegar á bak við lás og slá. Maðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi í síðustu viku. „Þetta hefur ekkert með fjöldafólksflutninga að gera,“ sagði Lammy. Óeirðir þrátt fyrir hvatningu til stillingar Morðingi Nowak er breskur sikki en stórt samfélag þeirra er í Bretlandi. Hann notaði skrauthníf sem sikkar hafa heimild til þess að bera til þess að stinga piltinn til bana í desember. Sikkar er trúarhópur og byrjuðu indverskir sikkar að flytjast til Bretlands á fyrri hluta 20. aldar en af auknum krafti eftir síðari heimsstyrjöldina. Árásarmaðurinn laug að lögreglu að Nowak hefði ráðist á sig og beitt sig kynþáttaníði. Lögreglumenn sem brugðust við trúðu Nowak ekki þegar hann sagðist hafa verið stunginn og handjárnuðu hann. Nowak lést svo af sárum sínum. Frá mótmælum við lögreglustöð í Southampton á þriðjkudag. Ýmsir öfgahægrimenn og popúlískir stjórnmálamenn hafa reynt að notfæra sér dauða Henry Nowak til þess að ala á sundrung og hatri.AP/Gareth Fuller Fjölskylda Nowak hefur hvatt til stillingar og varað við því að drápið á honum sé notað til þess að ala á sundrung í bresku samfélagi. Hún hefur þar talað fyrir daufum eyrum en Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, sagði morðið sýna að hvítir væru raunveruleg fórnarlömb kynþáttahyggju í síðustu viku. Óeirðir brutust einnig út í Southampton á þriðjudag þegar mótmælendur grýttu stólum, dósum, steinum og blysum í lögreglumenn. Líkti innflytjendastraumi við innrásina í Normandí Ummæli Vance um innflytjendur og drápið á Nowak eru aðeins nýjasta hrinan í endurteknum áróðri fulltrúa núverandi Bandaríkjastjórnar gegn Evrópu. Þeir hafa endurómað og stutt málflutning ýmissa evrópskra þjóðernisíhaldsflokka eins og Valkosts fyrir Þýskaland, Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi og Vox á Spáni. Í nýrri þjóðaröryggisáætlun Bandaríkjastjórnar sem lögð var fram í vetur var talað um „hnignun vestrænnar siðmenningar“ vegna fjölgunar innflytjenda af öðrum uppruna en evrópskum í álfunni. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sem titlar sjálfan sig „stríðsráðherra“, notaði ræðu í tilefni að því að 82 ár voru liðin frá innrás bandamanna í Normandí um helgina til þess að höggva enn í þennan sama knérunn. Talaði hann um „innrás hættulegrar hugmyndafræði“ í Evrópu og hvatti evrópsk stjórnvöld til þess að taka fyrir innflutning fólks, að því er segir í frétt Politico. „Því miður er nú önnur og hættuleg hugmyndafræði að gera inrás á öðrum evrópskum ströndum, strendur á Spáni, á Ítalíu, í Grikklandi og Búlgaríu, bátar og menn koma,“ sagði Hegseth og vísaði til fólks sem reynir að komast til Evrópu yfir Miðjarðarhaf frá Norður-Afríku. „Hvenær ætla evrópskar höfuðborgir að gera eitthvað í þessari innrás? Eða er það of seint? Ég bið þess að svo sé ekki, og ég held ekki,“ sagði Hegseth í ávarpi í bandaríska grafreitnum í Normandí þar sem bandarískir hermenn sem féllu í innrásinni sem hófst 6. júní 1944 eru grafnir. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, með blómsveig á minningarathöfn um innrásina í Normandí um helgina. Hann notaði ræðu sína þar til þess að gagnrýna innflytjendamál í Evrópu.AP/Jeremias Gonzalez Innrásin í Normandí sem Hegseth var í Frakklandi til þess að minnast var samstarf þúsunda hermanna frá vestrænum ríkjum sem tóku höndum saman til þess að stöðva framrás Þýskalands nasismans sem aðhylltist blóðuga kynþáttahyggju og hvíta yfirburðahyggju. Saman tókst bandamönnum að stökkva herliði nasista á flótta sem endaði með gersigri á þriðja ríkinu innan við ári eftir innrásina í Normandí. Tugir þúsunda sikka börðust með bandamönnum í síðari heimsstyrjöldinni. Upppfært 11:15 David Lammy var ranglega sagður utanríkisráðherra Bretlands í upphaflegri útgáfu fréttarinnar. Lammy er dómsmálaráðherra og varaforsætisráðherra.
Bandaríkin Bretland Erlend sakamál Donald Trump Innflytjendamál Seinni heimsstyrjöldin Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Sjá meira