Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 16:26 Christian Eriksen hné niður í landsleik í gær, í annað sinn á ferlinum. Getty/Ulrik Pedersen Danski fótboltamaðurinn Christian Eriksen er kominn heim af sjúkrahúsi og hefur það gott, eftir að hann hné niður í vináttulandsleik Danmerkur og Úkraínu í gær.
Eriksen hné niður og fór í hjartastopp í landsleik fyrir fimm árum en þessi 34 ára leikmaður Wolfsburg segir atvikið í gær hafa verið annars konar. Hann hefur síðustu ár verið með ígræddan bjargráð, lítið tæki sem getur endurræst hjartað, sem gerði sitt gagn í gær. Sjónvarpsmyndavélar sýndu ekki hvað gerðist á vellinum en danskir miðlar greina frá því að Eriksen hafi staðið upp og gengið sjálfur af velli eftir að hlúð hafði verið að honum í um tíu mínútur. Ekki eins og fyrir fimm árum „Ég vil láta alla vita að ég hef það gott og er kominn heim til fjölskyldu minnar. Eins og þið getið eflaust ímyndað ykkur hafði það mikil áhrif á mig og fjölskyldu mína að fá stuð frá bjargráðnum mínum, en ég vil fullvissa alla um að þetta var annars konar tilvik en það sem gerðist árið 2021. Mér líður vel og batinn er þegar hafinn,“ skrifaði Eriksen á Instagram. „Auk þess að vera þakklátur fyrir stuðning og aðstoð allra leikmanna og læknateymisins á vellinum, er ég líka ótrúlega þakklátur læknunum sem hafa annast mig og hjarta mitt í gegnum árin. Þökk sé sérfræðiþekkingu þeirra gerði bjargráðurinn nákvæmlega það sem hann átti að gera: verndaði mig þegar ég þurfti á því að halda,“ skrifaði Eriksen. Eftir að hafa farið í hjartastopp sumarið 2021, og fengið ígræddan bjargráð, mátti Eriksen ekki lengur spila með Inter samkvæmt reglum ítölsku A-deildarinnar. Hann endaði því hjá Brentford á Englandi og lék síðar með Manchester United og svo Wolfsburg frá því í fyrra. Ljóst er að í bili ríkir óvissa um framhald hans á fótboltavellinum: „Í bili einbeiti ég mér að því að ná bata, eyða tíma með fjölskyldunni, fara í frí og spila fótbolta með börnunum mínum,“ skrifaði Eriksen.
Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Sjá meira