Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Aron Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 10:33 Kári Árnason er yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík. Félagið styður þétt við bakið á sinum manni, Ingvari Jónssyni Vísir/Samsett Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík, segir ekkert annað hafa komið tll greina en að framlengja samning félagsins við Ingvar Jónsson, markvörð liðsins, sem berst nú við illkynja krabbamein. Ögmundur Kristinsson gekk í raðir félagsins í gær og mun verja mark Víkinga ásamt Aroni Snæ Friðrikssyni „
Gríðarlega sáttur,“ segir Kári í samtali við íþróttadeild Sýnar inntur eftir viðbrögðum við því að vera búinn að klófesta markvörð í reynsluboltanum Ögmundi Kristinssyni sem gengur til liðs við Víking frá Val. „Mikilvægt að maðurinn hafi staðið á stóra sviðinu. Við getum treyst honum í þau stóru verkefni sem eru framundan. Bæði heima fyrir og í Evrópu. Við treystum líka Aroni en ef eitthvað kemur fyrir Aron þá værum við í vanda staddir. Þetta er mjög flott fyrir samkeppnina í hópnum.“ Atburðarásin verið hröð eftir að Ingvar Jónsson, sem varið hefur mark Víkinga á glæstum tímum, greindist með illkynja krabbamein. Víkingar fengu undanþágu frá KSÍ til þess að sækja annan markvörð þar sem að Uggi Jóhann Auðunsson, annar markvörður hjá Víkingum, er einnig frá og að glíma við brjósklos í baki. „Samkvæmt reglugerðinni átti þetta að fljúga í gegn en tók svolítinn tíma. Þetta var mjög formlegt ferli en hafðist á endanum. Ég átti gott spjall við Ögmund. Þekki hann vel frá okkar tímum í landsliðinu saman. Ég treysti honum fullkomlega. Hann mér að hann væri klár í verkefnið og það væri ekkert að trufla hann líkamlega. Svo fór hann í gegnum sjúkraskoðun, flaug í gegnum það. Hann mun koma sterkur inn í þetta hjá okkur.“ Ögmundur Kristinsson verður í treyju númer 47 í Víkinni.Víkingur Kári býst við hungruðum Ögmundi í markinu hjá Víkingum en kappinn hefur mátt sæta sig við lítinn sem engan spilatíma hjá Val þar sem að hann fékk að vita það fyrir tímabilið að hans krafta væri ekki lengur óskað á Hlíðarenda. „Oft þegar að menn fá svona í andlitið þá koma þeir tvíefldir til baka. Ég hef engar áhyggjur af því að það verði ekki líka staðan hjá honum.“ Styðja þétt við bakið á Ingvari Ingvar Jónsson háir nú sína baráttu utan vallar við meinið og Víkingar styðja við hann af fullum krafti. Samningur Ingvars við Víkinga var framlengdur í gær. Það koma aldrei neitt annað til greina hjá Víkingum en að styðja með þessum hætti við bakið á sínum manni. Ingvar Jónsson handsamar knöttinn í leik með Víkingi ReykjavíkVísir/Hulda Margrét „Við vorum alltaf að fara gera þetta. Ingvar er búinn að vera fyrsti maður á blað hjá okkur í háa herrans tíð. Gríðarlega stór partur af velgengni félagsins frá því að hún byrjaði. Hefur bjargað okkur trekk í trekk, er æðislegur liðsmaður, félagi og vinur allra í félaginu. Kom aldrei neitt annað til greina.“ Kári er stoltur af því hvernig leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn Víkings Reykjavíkur hafa þjappað sér saman í kjölfar áfallsins sem fréttirnar af Ingvari voru. „Maður sér það á leik liðsins að þeir eru byrjaðir að spila fyrir einhvern annan en sjálfan sig. Oft setur svona atriði hlutina í stærra samhengi. Líka bara hvernig íslenska fótboltasamfélagið hefur þjappað sér saman, allir að leggja sitt af mörkum.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira