Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2026 13:01 Frá minnisvarða um fallna hermenn í Úkraínu. EPA/SERGEY DOLZHENKO Æðsti yfirmaður lögreglunnar í Úkraínu segir útsendara frá leyniþjónustum Rússa fá úkraínskar táningsstúlkur og ungar konur til að myrða úkraínska hermenn. Stúlkunum er lofað að þær fái peninga fyrir að fylgja leiðbeiningum og eitra fyrir mönnum sem þær mæla sér jafnvel móts við gegnum internetið.
Í viðtali sem birt var í úkraínskum miðli í gær sagði Ivan Vyhivskyi, yfirmaður lögreglunnar í Úkraínu, að á þessu ári hefði lögreglan komist á snoðir um sex mismunandi tilvik þar sem úkraínsk ungmenni áttu í samskiptum við rússneska útsendara gegnum samfélagsmiðla og samþykktu að myrða hermenn gegn greiðslum. Eitt launmorð af sex var stöðvað. Vyhivskyi segir þessa útsendara finna ungar konur og lofa þeim peningum. Þær eru síðan fengnar til að setja sig í samband við hermenn gegnum stefnumótaforrit og síður. Rússarnir leigja íbúðir eða herbergi þar sem stúlkurnar mæla sér mót við hermennina en útsendararnir kaupa einnig áfengi og útvega stúlkunum metadón, sem þær nota svo til að eitra fyrir hermönnunum. Lögreglan í Úkraínu sagði svo frá því í morgun að nítján ára kona hefði verið handtekin fyrir að eitra fyrir 23 ára gömlum úkraínskum hermanni sem dó á sjúkrahúsi. Konan stendur frammi fyrir lífstíðardómi vegna morðsins. Konan er sögð hafa átt í samskiptum við hermanninn gegnum internetið og sent honum svo pakka með áfengi í. Hún hafði sett metadón út í áfengið en hermaðurinn dó á sjúkrahúsi. Í áðurnefndu viðtali varaði Vyhivskyi úkraínska hermenn við því að hitta fólk gegnum internetið. Rússneskir útsendarar notuðu slík samskipti til að öðlast upplýsingar og líka til að myrða hermenn. Þá bað hann úkraínska foreldra um að fylgjast með samskiptum barna sinna. Varaði hann við því að rússneskir útsendarar legðu sérstaka áherslu á úkraínsk ungmenni. Fengu ungmenni til að smíða sprengjur Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjallað er um það að úkraínsk ungmenni séu nýtt af rússneskum útsendurum til árása eða upplýsingaöflunar. Í fyrra bárust fregnir af því að rússneskir útsendarar hefðu ráðið táninga til að smíða og koma fyrir sprengjum í Úkraínu. Í einhverjum tilfellum voru ungmennin óaðvitandi gerð að sjálfsmorðssprengjumönnum. Bæði buðu Rússar þessum táningum fúlgur fjár fyrir að smíða sprengjur og koma þeim fyrir. Í einu tilfelli eru þeir sagðir hafa brotið sér leið inn í síma fjórtán ára stúlku og hótað að birta myndir af henni sem þeir fundu þar. Þannig þvinguðu þeir hana til að smíða sprengju, eftir leiðbeiningum þeirra, og fara með hana á lögreglustöð í heimabæ hennar. Hún var þó gómuð og engan sakaði. Retuers hefur eftir lögreglunni í Úkraínu að frá því stríðið gegn Rússum hófst hafi rúmlega 1.100 Úkraínumenn verið sakaðir um árásir gegn Úkraínu, eins og íkveikjur, sprengjuárásir og skemmdarverk. Ráðamenn í Rússlandi hafa sakað Úkraínumenn um að ráða rússneska ríkisborgara til að gera árásir í Rússlandi. Forsvarsmenn leyniþjónustu úkraínska hersins hafa gengist við nokkrum launmorðum og sprengjuárásum gegn yfirmönnum í rússneska hernum frá því innrás Rússa hófst í febrúar 2022.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira