Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 11. júní 2026 19:31 Margir segja að Ísland þurfi ekki á Evrópusambandinu að halda. Við eigum fiskimiðin, hreina orkuna, hreint vatn og einstaka náttúru. Það er rétt. Við búum í einu besta landi heims. Við höfum byggt upp öflugt velferðarsamfélag, menntakerfi, heilbrigðisþjónustu og atvinnulíf sem hefur sýnt ótrúlega aðlögunarhæfni. En er það næg ástæða til að hafna því að skoða ný tækifæri? Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um að ganga í Evrópusambandið. Hún snýst um hvort við eigum að halda áfram viðræðum og fá samning á borðið. Auðlindirnar fara ekki neitt Ein algengasta hræðslan í umræðunni er að Ísland muni missa yfirráð yfir auðlindum sínum. En fiskimiðin flytjast ekki úr landi. Jarðhitinn hverfur ekki. Vatnsorkan verður áfram íslensk. Hreina vatnið verður áfram íslenskt. Við eigum áfram auðlindirnar. Raunverulega spurningin er því ekki hvort við eigum þær, heldur hvort við getum nýtt þær enn betur. Ef við erum svona rík af auðlindum – af hverju eru vextirnir þá svona háir? Ef auðlindir einar og sér væru lykillinn að góðum lífskjörum ætti Ísland að vera með lægstu vexti í Evrópu. Við eigum einhver verðmætustu fiskimið heims. Við framleiðum nær alla raforku okkar með endurnýjanlegum orkugjöfum. Við búum yfir mikilli sérþekkingu á sviði sjávarútvegs, orku og nýsköpunar. Samt hafa íslensk heimili og fyrirtæki um áratugi búið við hærri vexti en til dæmis Danir. Munurinn á húsnæðisláni á Íslandi og í Danmörku getur numið tugum milljóna króna yfir lánstímann. Auðlindir eru mikilvægar. En það er augljóst að þær duga ekki einar og sér. Traust, stöðugleiki, gjaldmiðill, samkeppnishæfni og aðgangur að stærri mörkuðum skipta líka miklu máli. Framtíðin byggist á hugviti Á síðustu öld voru fiskur og orka grunnurinn að verðmætasköpun. Á þessari öld verður samkeppnishæfni þjóða sífellt meira byggð á þekkingu, rannsóknum, nýrri tækni, skapandi greinum og alþjóðlegu samstarfi. Þar hefur Ísland mikla styrkleika. Við seljum ekki bara fisk. Við seljum þekkingu. Við seljum ekki bara orku. Við seljum lausnir. Íslensk fyrirtæki hafa þróað sjávarútvegstækni, hugbúnað, heilbrigðistækni og orkuþekkingu sem vekur athygli víða um heim. 450 milljóna manna markaður er ekki ógn heldur tækifæri til að nýta og þróa þessa okkar styrkleika. Litlar þjóðir geta haft áhrif Sumir tala eins og litlar þjóðir hverfi inni í Evrópusambandinu. Raunin er að; Írland, Malta og Eistland eru áfram sjálfstæð ríki með eigin menningu, tungumál og sérstöðu. Þau hafa hins vegar nýtt samstarfið til að efla hagvöxt, rannsóknir, nýsköpun og samkeppnishæfni. Spurningin er ekki hvort Ísland sé of lítið. Spurningin er hvort við höfum sjálfstraust til að taka þátt og tryggja betur okkar hagsmuni á miklu stærri markaði. Óttumst ekki samningaborðið Sýnum sjálfstraust og segjum já við að sjá hvaða kjör Ísland getur náð í samningi. Nú þegar samningsstaða okkar er tiltölulega sterka er skynsamlegt að láta reyna á hvaða samning við getum fengið. Það er alltaf erfiðara að semja fyrir þann sem er í veikri stöðu. Ef samningurinn reynist óhagstæður getur þjóðin hafnað honum. En ef við sjáum hann aldrei munum við aldrei vita hvaða tækifæri stóðu okkur til boða. Getur okkar góða staða orðið enn betri? Ísland er eitt besta land í heimi. En saga Íslands hefur aldrei byggst á því að sitja kyrr og vona að framtíðin verði eins og fortíðin. Hún hefur byggst á hugrekki, nýsköpun og vilja til að kanna nýjar leiðir. Við eigum auðlindirnar. Við eigum þekkinguna. Við eru vel menntuð, höfum verðmæta reynslu og getu sem við skulum nýta enn betur til að styrkja framtíð Íslands. Spurningin er hvort við getum gert góða stöðu Íslands enn betri fyrir komandi kynslóðir. Það er ekki áhætta að afla upplýsinga. Áhættan felst í því að hafna þeim áður en við höfum séð þær. Höfundur er viðskiptafræðingur og áhugamaður um góða framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar