Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Samúel Karl Ólason skrifar 12. júní 2026 14:26 Tulsi Gabbard er að láta af störfum sem yfirmaður allra leyniþjónusta Bandaríkjanna. EPA/WILL OLIVER Tvær umdeildar skýrslur um hið svokallaða Havana-heilkenni hafa verið dregnar til baka. Tulsi Gabbard, fráfarandi yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, segir skýrslurnar ekki hafa staðist greiningarstaðla en þar var því haldið fram að hin dularfullu áratugsgömlu veikindi tengdust ekki aðgerðum eða árásum óvina.
Í minnisblaði sem Gabbard sendi út í gær segir að höfundar skýrslnanna tveggja, sem eru frá mars 2023 og janúar 2025, hafi hunsað vísbendingar og sönnunargögn sem hefðu farið gegn niðurstöðum þeirra. Stuðst hefði verið við takmarkaðar upplýsingar og gallaða heilsurannsókn. Þá segir að frekari rannsóknir á heilkenninu og hvað hafi valdið því muni fylgja strangari reglum og innihalda fleiri sjónarmið. Þingmaðurinn Rick Crawford deildi minnisblaði Gabbard í gær. Hann segir að áðurnefndar skýrslur hafi verið gerðar til að koma höggi á fólk sem telur sig hafa fengið Havana-heilkennið. Hann er formaður nefndar fulltrúadeildarinnar um leyniþjónustumál og hefur áður haldið því fram að Havana-heilkennið sé raunverulegt og að óvinveittir aðilar hafi valdið því. This is huge news for the AHI victim community, analytic integrity, and for the American people.These flawed, fraudulent, and manufactured Intelligence Community Assessments (ICA) have caused significant harm to some of our nation’s bravest. ICAs carry a great deal of weight,… pic.twitter.com/nRCjGzVuFb— Rep. Rick Crawford (@RepRickCrawford) June 11, 2026 Havana-heilkennið vísar til veikinda og óútskýrðra heilbrigðisvandamála sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað yfir á undanförnum árum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu, seint árið 2016. Í frétt Wall Street Journal segir að síðan þá hafi rúmlega fimmtán hundruð opinberir starfsmenn tilkynnti veikindi í takt við Havana-heilkennið. Tilfelli hafa verið tilkynnt í Kína, Rússlandi, Póllandi, Serbíu, Indlandi, Kólumbíu og í Frakklandi. Mikil veikindi og víða Í einhverjum tilfellum hafa fylgikvillar þessara veikinda verið mjög miklir, svo miklir að fólk hefur þurft að setjast í helgan stein og getur ekki átt hefðbundið líf án aðstoðar. Árið 2024 bendluðu blaðamenn nokkurra miðla leynilega sveit rússneskra njósnara við heilkennið. Sjá einnig: Bendla umdeilda rússneska sveit við Havana-heilkennið Sú sveit kallaðist Unit 29155. Blaðamenn 60 Mínútna og rússneska útlagamiðilsins Insider komu höndum yfir gögn sem þeir segja að hafi bent til þess að meðlimir sveitarinnar hafi gert tilraunir með vopn sem átti að geta valdið veikindum með því að senda út örbylgjur. Sjá einnig: Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Í byrjun þessa árs bárust fréttir af því að innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna hefðu í rúmt ár staðið yfir tilraunir á tæki sem gæti hafa verið notað til að framkalla Havana-heilkennið. Bandarískir njósnarar voru sagðir hafa varið fúlgum fjár í tækið. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa aldrei staðfest að vopni hafi verið beitt gegn þessu fólki. Því hefur verið haldið fram að Havana-heilkennið sé einhvers konar fjöldamóðursýki en formleg niðurstaða rannsóknar innan leyniþjónustusamfélags Bandaríkjanna er að engar útskýringar hafi fundist á heilkenninu. Í skýrslu sem unnin var vegna rannsóknarinnar kom fram að ein möguleg útskýring á þessum veikindum væru örbylgjur. Fólk sem talið er mögulega þjást af Havana-heilkenninu hefur lýst því hvernig það hafi fundið fyrir einhvers konar höggi og að það hafi misst heyrnina, eins og sprengja hafi sprungið nærri því. Í kjölfarið hafi fylgt sterkur höfuðverkur. Norskur vísindamaður sem sagður er hafa gert tilraunir á sjálfum sér með þessu vopni mun nú í kjölfarið glíma sjálfur við hin dularfullu veikindi. Hann hafði það markmið að sanna að hið meinta vopn væri skaðlaust. Sjá einnig: Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Marc Polymeropoulos, fyrrverandi starfsmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) er einn þeirra sem segjast hafa þjáðst af Havana-heilkenninu. Hann hefur kallað eftir því að skýrslurnar tvær verði felldar úr gildi og hefur þakkað Gabbard fyrir að hafa gert það. In my March appearance on @60Minutes, I called on @ODNIgov to rescind the two previously flawed IC assessments on Havana Syndrome. Yesterday, the DNI finally did so. This is a huge step in getting justice for the USG victims, including my colleagues at CIA whose lives hav been… https://t.co/PQlMyES0pg— Marc Polymeropoulos (@Mpolymer) June 12, 2026
Bandaríkin Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira