Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2026 21:34 Heimir Hallgrímsson þarf að sætta sig við að spila einn heimaleikinn á hlutlausum velli. Getty/Vaughn Ridley Írar hafa ákveðið að fórna einum heimaleikja sinna í Þjóðadeildinni í haust vegna mótmæla en umdeildur leikur gegn Ísrael verður færður á hlutlausan völl.
Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands en þarf að sætta sig við það að spila einum heimaleik færra. Heimaleikur Írlands gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta þann 4. október verður ekki spilaður í Dublin eins og áætlað var. Þetta staðfesti írska knattspyrnusambandið í dag. Leikurinn, sem upphaflega átti að fara fram á Aviva Stadium í Dublin, verður færður á hlutlausan völl og spilaður án áhorfenda. Sambandið vísar til „rekstrarlegra áskorana“ í tengslum við leikinn. Republic of Ireland’s home match against Israel on October 4 will be moved from Dublin to a neutral venue, the Football Association of Ireland (FAI) has said.UEFA has approved the FAI’s request to move the Nations League game to a neutral overseas venue, which is yet to be… pic.twitter.com/uwA0XlgLL2— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 12, 2026 Málið kemur í kjölfar krafna frá aðgerðasinnum sem styðja Palestínu um að Írland sniðgangi leikina gegn Ísrael. Í nýlegum vináttulandsleik gegn Katar köstuðu aðgerðasinnar fjölda tennisbolta inn á völlinn með skilaboðunum „Stöðvið leikinn“ og vísuðu þar til komandi leikja í Þjóðadeildinni. Írska sambandið leggur áherslu á að hugsanleg sniðganga leikjanna hefði getað haft slæmar afleiðingar fyrir írska fótboltann og írskar íþróttir. The Football Association of Ireland (FAI) has confirmed that UEFA has approved a request to host the 2026-27 UEFA Nations League fixture between Ireland and Israel on October 4th overseas, in a neutral venue and behind closed doors. pic.twitter.com/R2OIDwMeFA— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 12, 2026 Sambandið bendir á að töpuð stig í Þjóðadeildinni hefðu getað skert möguleika liðsins á að komast á EM 2028, sem Írland heldur ásamt Bretlandi. Írska knattspyrnusambandið greinir jafnframt frá því að það hafi verið í nánu sambandi við palestínska knattspyrnusambandið. Írarnir hafa áður hvatt Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, til að víkja ísraelska knattspyrnusambandinu úr evrópskum keppnum vegna hernaðaraðgerða Ísraels á Gaza. Ísrael mun einnig spila sinn „heimaleik“ gegn Írlandi á hlutlausum velli þann 27. september.
Þjóðadeild karla í fótbolta Ísrael Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira