Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 12. júní 2026 21:33 Best að taka það fram strax ég er ekki hagfræðingur. Ég er 60 ára kona sem hef búið á Íslandi öll mín ár, varð einstæð móðir aðeins 22 ára og öryrki um 28 ára. Lengst af bjó ég í Reykjavík ásamt móður minni og syni en 1993 fluttum við út á land. Krónubaslið hefur kennt manni margt um fjármál og hvernig önnur atriði geta haft bein eða óbein áhrif á fjármál heimilisins. Já, best að það komi fram líka, þetta er um ESB, hvað annað, er ekki allt um ESB núna? Fjarlægðin gerir fjöllin blá og vöruverð hátt úti á landi Þegar maður býr úti á landi venst maður því að allt er aðeins dýrara þar en á höfuðborgarsvæðinu, bæði matur og annað. Þetta er oftast ekki vegna græðgi heldur er flutningskostnaður meiri og búðirnar minni. Þetta eru lögmál markaðarins, langar vegalengdir og lítil eftirspurn sama sem hærra vöruverð. Tökum dæmi: Ég bjó á Flateyri. Þar höfðum við kaupfélag. Þar var ekki mikið vöruúrval en maður vandist því og maður vandist því líka að afslættir og tilboð framleiðanda skiluðu sér næstum aldrei vestur. Dæmi: Það var tilboð á lambakjöti frá því í fyrra til að rýma fyrir nýslátruðu og þegar spurt var um það í kaupfélaginu kom „þú býrð ekki í Reykjavík núna“, en þessi saga endar illa. Það kom Bónus á Ísafjörð og nú flykktust allir þangað að kaupa ódýrt í matinn sem endaði með því að búðin hætti starfsemi svo að nú urðu allir að keyra 45 km til að komast í búð eða kaupa það litla sem bensínsjoppan bauð upp á dýrum dómum, og það verður oft ófært á vetrum þó að það séu komin göng. Og hvað kemur þetta ESB-umræðunni við? Jú, skoðið hvað Ísland er langt frá Evrópu, langt út í hafi. Við færumst ekki nær þó við göngum í ESB. Okkur fjölgar ekki heldur, við verðum enn bara lítill markaður svo allir draumar um stórar verslanakeðjur og samkeppni eru jú bara draumur. Markaðurinn ræður alltaf og hann er ekki að hugsa um fólk, bara pening. Húsnæði og verðbætur Aftur þegar ég bjó á Flateyri voru einbýlishús miklu ódýrari en í Reykjavík, maður fékk þau næstum gefins. Það var vegna þess að verð á rafmagni og hita var svo hátt, 1994 var það 15 þúsund en um 3 þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Það að húsnæði sé miklu ódýrara annars staðar en á Íslandi getur stafað af mörgu, eins og hitunarkostnaði, atvinnu og lánsmöguleikum. Verðbætur eru verk djöfulsins heyrði ég einu sinni. en staðreyndin er sú að án þeirra hefði ég aldrei getað keypt hús, þá orðin 37 ára, ég fékk ekki greiðslumat nema ég tæki verðtryggt lán, nú þekki ég ekki hvernig lánamálum er háttað í öðrum löndum en verðtrygging er ekki leyfileg innan ESB. Hefði ég þá aldrei getað keypt hús? Kolefnisspor – fæðuöryggi – sýklalyfjaónæmi Auðvitað myndi margt lækka en líka annað hækka, við verðum að segja upp tollasamningum við önnur lönd ef við förum í ESB, eins og Bandaríkin og Japan, það eru nokkuð margir vöruflokkar þar eins og Toyota og hvað verður um Costco? Við höfum mjög heilbrigðan dýrastofn á Íslandi sem er jákvætt í heimi þar sem sýklalyfjaónæmi fer vaxandi. Þetta verðum við að standa vörð um og þetta er ekki síður mikilvægt varðandi fæðuöryggi. Þið munið að við erum lengst úti í hafi ef eitthvað gerist svo ekki væri hægt að sigla eða fljúga yrðum við að eiga og geta framleitt mat sjálf, að ógleymdu kolefnasporinu sem flutningar um hafið og heim skilja eftir sig. Áhugavert að skoða Um að gera að skoða það sem fólk er að skrifa og mæta á fundi, kanna málið frá sem flestum hliðum. Ég sendi fyrirspurn á RÚV um að endursýna þættina „Ferð til fjár“ sem sýndir voru árið 2015 með Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, og Helga Seljan. Þar koma þeir inn á þetta með fákeppni og margt fleira, það er líka til bók með sama nafni. Mæli líka með því að fólk lesi skýrslu frá 2007 Hagfræðistofnun Háskóla Íslands Kostir og gallar upptöku evru sem gjaldmiðils á Íslandi þar sem þetta kemur fram: „Hins vegar verður að hafa í huga að vöruverð er ekki hið sama á evrusvæðinu og ljóst að flutningskostnaður og aðrir þættir geta leitt til ójafns vöruverðs á sama myntsvæði.“ Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun