„Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ 14. júní 2026 20:40 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri, sá sitt lið tapa sjöunda leiknum í röð í kvöld. Vísir/Pawel Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, þurfti að sætta sig við 4-1 tap gegn ÍBV á heimavelli í dag. Þórsliðið átti ekki góðan leik og því um margt að spyrja. „
Bara ósáttur með leikinn. Byrjum leikinn vel, fáum fyrstu tvö færin í leiknum, tökum þau ekki, það er svona sagan okkar að taka ekki færin okkar, taka ekki fyrstu færin og svo skora þeir úr fyrsta færinu sínu og við gerum ekki nægilega vel þar. Þá náttúrulega bara breytist leikurinn og þeir ríða á vaðið og skora þarna þrjú mörk á stuttum tíma sem var mikið högg. Við komum aðeins ferskari inn í seinni hálfleikinn og áttum einhver augnablik en ég held að það sé heilt yfir ekki nægilega gott.“ Varnarleikur Þórs var í molum og svo virtist sem tvær til þrjár sendingar Eyjamanna dygðu til að búa til dauðafæri og því var næsta spurning hvort Sigurður væri með skýringu á slæmum varnarleik liðsins í dag. „Nei, nei, ég meina, eins og ég segi, við byrjum þennan leik vel, mér fannst orkustigið gott þegar við byrjum leikinn og komum inn í hann. Ein skipting og hann vinnur stöðuna einn á einn og skýtur honum í varnarmann. Var það ekki fyrsta markið og svo annað markið þá aftur einhvern veginn töpum við stöðunni einn á einn og kannski svona varnarleikurinn í heild sinni sem fer þarna. Þetta eru kannski leiðinleg augnablik en útskýringin að þetta er bara ekki nógu góður varnarleikur, skilurðu, og þá bara skora þeir, það er engin útskýring á því.“ Frammistaðan ekki nógu góð, en fannst þér baráttan og viljinn vera til staðar? Já svona, ég hefði viljað fá meira, skilurðu, þannig að ég er svona pínu svekktur með fyrri hálfleikinn. Mér fannst við sýna aðeins meiri vilja í seinni hálfleik líka en eins og ég segi það voru hérna stór skörð höggin í þetta hjá okkur í dag en ég bjóst við okkur aðeins ferskari. Fyrsta markið svona slær okkur og við náðum bara einhvern veginn ekki að svara því nógu vel og bara strax annað mark í andlitið. Svo náttúrulega týpískt að við skorum 3-1 og augnablikið með okkur en við fáum bara mark í andlitið. Lélegt skot af varnarmanni sem lekur inn, skilurðu, þannig að svona mörkin eru full leiðinleg sem við fáum á okkur.“ „En ég meina ég ætla ekkert að vera eitthvað algjörlega niðurbrotinn. Við þurfum að herða okkur, erum búnir að tapa núna sjö leikjum í röð, eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik.“ Hvað þarf að breytast? „Við þurfum bara að vera betri. Við þurfum að, ég þarf að setja upp greinilega aðeins betra leikplan, ég þarf að stilla þá aðeins betur af líkamlega fyrir næsta leik og mögulega andlega líka þannig að bara eiginlega allt,“ sagði Sigurður að lokum.
Besta deild karla Þór Akureyri ÍBV Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Fleiri fréttir Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjá meira