„Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. júní 2026 12:25 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. vísir/Vilhelm Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar.
Starfsáætlun Alþingi var kippt úr sambandi í síðustu viku og til stóð að ljúka þingstörfum á föstudag. Enn er þingið þó að störfum en þingflokksformenn segja stefnt að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta þessarar viku. Þingflokkar funda í hádeginu en að því loknu stendur til að halda áfram umræðu og greiða atkvæði um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins fóru fram á að þeirri umræðu yrði frestað fram í ágúst þar sem einnig yrði hægt að ræða fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma í morgun vísaði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, til þess að fjármálaáætlun byggi á febrúarspá Seðlabankans en að verri efnahagsforsendur blasi við í maíspá bankans. Miðað við breyttar forsendur megi lítið út af bregða til þess að markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög renni út í sandinn. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm „Bent hefur verið á að þegar litið er aðeins á þau frávik sem þegar liggja fyrir geti niðurstaðan orðið sextán til tuttugu og tveggja milljarða króna halli, en ekki afgangur. Fjármálaáætlun á að sýna stöðuna eins og hún er, ekki eins og ríkisstjórnin vonar að hún verði,“ sagði Guðrún. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, ítrekaði að hér væri um áætlun að ræða og að tekið verði tillit til nýrrar spár þegar fjárlög verði útfærð nánar. Ekki þurfi að taka frekari umræðu á þingstubbi í ágúst - nokkrum vikum áður en fjárlögin verði lögð fram. „Þá getur hið pólitíska samtal átt sér stað í þessum þingsal. Ég efast ekki um að minni hlutinn muni láta í sér heyra hvað það varðar. Það sama á við um umræðu um Evrópusambandið. Þjóðin fær boltann núna, þjóðin veit sínu viti. Hér hefur átt sér stað mikil umræða um Evrópusambandið, ekki bara í tengslum við þessa þingsályktunartillögu heldur í raun frá því að þetta kjörtímabil hófst. Nú er komið að þjóðinni að melta málið og fara yfir stöðuna og það er í góðu lagi að gefa henni orðið núna,“ sagði Kristrún.
Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Sjá meira