Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 12:05 Stuðningsmenn Fylkis fögnuðu bikarsigrinum vel með sínum mönnum en hluti þeirra hagaði sér ósæmilega og beindi fúkyrðum að Gróttufólki. Skjáskot/RÚV Knattspyrnudeild Fylkis hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar hegðun hluta stuðningsmanna liðsins á leiknum við Gróttu í Árbænum á laugardag, í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Eins og fjallað var um á Vísi í morgun var grófum munnsöfnuði beint að leikmanni Gróttu í leiknum, sem og unnustu hans sem þar að auki mun hafa orðið fyrir aðkasti í verslun í nágrenninu eftir leik. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá Gróttu þar sem kallað var eftir því að málið yrði tekið til skoðunar. Samkvæmt yfirlýsingu sem Fylkismenn sendu svo frá sér nú í hádeginu mun félagið taka hart á hegðun stuðningsmannanna og gera það sem það getur til að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig. Þá er skýrt tekið fram að yfirlýsingin sé ekki það síðasta sem Fylkismenn muni aðhafast í málinu en hana má sjá hér að neðan. Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar er víðs fjarri því sem Fylkir vill standa fyrir. Sú hegðun sem þar átti sér stað á ekkert skylt við íþróttir eða bara almennt í lífinu. Félagið mun taka hart á þessu og gera það sem það getur til að álíka hlutir endurtaki sig ekki. Knattspyrnudeildin vill einnig biðja alla þá sem urðu fyrir þessari óásættanlegu hegðun afsökunar. Það er Fylki mikið kappsmál að hafa alla umgjörð í lagi og að allir telji sig örugga og velkomna á félagssvæði okkar. Einkunnarorð okkar eru Gleði – Virðing – Metnaður. Þau verða höfð að leiðarljósi við meðferð þessa máls. Þessi yfirlýsing er alls ekki það síðasta sem Knattspyrnudeild Fylkis mun aðhafast í þessu máli. Ragnar Páll Bjarnason Formaður Knattspyrnudeildar Fylki
Fylkir Grótta Mjólkurbikar karla Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Sjá meira