Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 13:28 Makayla Soll hefur verið lykilmaður hjá KR síðustu ár. KR Makayla Soll, fyrirliði og lykilleikmaður kvennaliðs KR í fótbolta, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum þegar hún lenti á vegg í leik gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni um helgina. Þjálfari KR furðar sig á að spilað sé inni í höllinni og segir of stutt bil frá vellinum og í harða veggi hallarinnar. „
Það var höllin sem olli meiðslunum en þau eru líka tilkomin vegna þess að henni var hrint út í vegginn með báðum höndum. Hún setti hendurnar fyrir sig til að skellast ekki á vegginn, þær brotnuðu báðar og hún er núna komin í gifs,“ segir John Andrews, þjálfari KR, í samtali við Vísi í dag. Makayla fór meidd af velli skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks og við tók um hálftíma hlé á meðan að hlúð var að henni, áður en hún yfirgaf svo svæðið í sjúkrabíl á leið á sjúkrahúsið í Neskaupstað. „Skil ekki af hverju liðið spilar þarna“ „Veggurinn er svo nálægt vellinum. Ég held að það sé varla nema einn og hálfur metri þarna,“ segir John og spyr sig hvort KSÍ þurfi ekki að aðhafast eitthvað vegna þessa. Þá hljóti forráðamenn FHL að hugsa sig tvisvar um varðandi fleiri leiki í höllinni: „Þeir hljóta að minnsta kosti að setja einhverja bólstrun þarna núna en skaðinn er skeður fyrir Makaylu með tvær brotnar hendur. Ég skil ekki af hverju liðið spilar þarna í stað þess að spila á Neskaupsstað eða Egilsstöðum. Það er fallegur gervigrasvöllur á báðum stöðum en það er eins og að það megi ekki trufla leikmenn með því að ferðast stutta stund á þessa velli. Við verðum að hafa hærri standard hérna,“ sagði John. Ofurkona en fær þann tíma hún þarf Nú er orðið ljóst að Makayla missir væntanlega af stórleiknum gegn Haukum á sunnudag, toppslag Lengjudeildarinnar, og fleiri leikjum. „Það er ómögulegt að segja hve lengi hún verður frá. Hún er ofurkona en hún verður að fá þann tíma sem hún þarf. Komandi leikir skipta engu máli í þessu sambandi og við setjum heilsu hennar í algjöran forgang,“ segir John.
Lengjudeild kvenna KR Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira