Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Árni Gísli Magnússon skrifar 15. júní 2026 21:06 Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Fram sótti góðan sigur norður yfir heiðar þegar liðið mætti KA í tíundu umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun og sigruðu Framarar að lokum 4-3. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var skiljanlega svekktur eftir leik og þá sérstaklega út í eina ákvörðun dómara leiksins sem hafði mikil áhrif. „
Ég er svekktur. Mér finnst við gera margt vel, við skorum fjögur lögleg mörk hérna á heimavelli af einhverri furðulegri ástæðu er mark tekið af okkur, ég er búinn að sjá það aftur og það kemur enginn nálægt markmanninum í KA liðinu, taka af okkur löglegt mark sem er erfitt en sóknarlega gerum við margt fínt.“ „Við skorum eins og ég sagði fjögur mörk en að fá fjögur mark á sig á heimavelli er bara of mikið. Við vissum að þeir myndu sparka boltanum í hornin og hlaupa, við vorum búnir að æfa það, en þeir gerðu það vel og við áttum erfitt með að eiga við það og stundum hefðum við átt að vera skynsamari þegar þeir komu upp í hornin að halda þeim úti. En ég var ánægður með hugarfarið í mínum leikmönnum, við lendum undir, við komumst yfir, dæmt af okkur löglegt mark og þá endar með hérna í lokin að við erum bara að þrýsta á Fram liðið og Fram er frábært lið. Fram er búið að gera það sama núna í þrjú ár og einhvern veginn búið að bæta sig og er á flottum stað í deildinni þannig frammistaðan í heildina er góð en að fá á sig fjögur mörk var bara of mikið í dag.“ Reiður en reyndi að vera kurteis KA skoraði mark í stöðunni 1-1, eins og Hallgrímur kom inn á, sem virtist vera löglegt en var dæmt af vegna meints brots á Viktori Frey markmanni Framara. Við nánari skoðun kemur í ljós að það er samherji Viktors sem rekst utan í hann en ekki KA maður. Hallgrímur lét óánægju sína bersýnilega í ljós við dómarateymið þegar gengið var til búningsherbergja eftir leik og því forvitnilegt að vita hvaða var sagt á milli Hallgríms og Elísar Inga dómara í þessu samtali. „Kom ekkert svar skilurðu. Ég reyndi, ég var reiður, en ég reyndi að vera kurteis og fékk ekki spjald eða neitt, ég benti honum bara á að hann dæmir af okkur, þetta er ekki í fyrsta skipti, hann dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark hérna á heimavelli og það er bara svekkjandi því að fyrir mér hafði þetta bara mikil áhrif á leikinn en ég veit alveg að hann er ekki að reyna dæma á móti KA sko. Hann bara einhvern veginn hlýtur að giska á þetta því það kemur enginn nálægt honum og hann er með aðstoðarmenn með sér en því miður er þetta svona skilurðu og ég get ekkert haft áhrif á það. Að sjálfsögðu erum við svekktir, áttum að fá meira út úr leiknum, en við tökum það góða með okkur og höldum áfram.“ KA hefur átt í brasi með að skora á tímabilinu en það gekk vel í dag en þá láku of mörg mörk inn hinu megin í staðinn. „Við erum búin að mæta bara tveimur frábærum liðum. Við mættum KR og vissum alveg hvernig það yrði. Við töpuðum þar og gerðum margt vel, við vitum líka að Fram eru flottir og þegar við ákveðum að fara á þá og trufla uppspilið þá munu koma langir boltar, við vissum það, við ætluðum að taka þá taktík og eins og ég segi við skorum vel en því miður fengum við of mörg mörk á okkur og það er bara eitthvað sem við vinnum í.“ „Fram spilar öðruvísi fótbolta en flest önnur lið í deildinni. Það eru ekki margir með þrjá hafsenta og tvö frammi og negla upp í hornin og hlaupa en bara gerðu það vel. Eins og ég sagði áðan; við tökum það sem við gerðum vel með okkur í næsta leik og þessi deild er bara þannig að þetta er hörku barátta og erum um miðja deild. Við þurfum bráðum að fara fá einhver stig, það væri gott“, sagði Hallgrímur að endingu.
Besta deild karla KA Fram Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira