Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Kjartan Kjartansson skrifar 16. júní 2026 09:28 Kveikt var í húsi þar sem Keir Starmer bjó áður og mágkona hans leigði af honum í fyrra og í bíl sem hann átti áður. BBC segir að Rússar hafi greitt fyrir íkveikjurnar. Vísir/Getty Menn sem kveiktu í húsi og bíl sem tengdust Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fengu greitt fyrir það frá rússneskum æsingamönnum. Sömu menn reyndu að ala á sundrung og æsa til ófriðs milli múslima og öfgahægrimanna með dulbúnum áróðri á netinu.
Breskur dómstóll sakfelldi í gær tvo karlmenn og sýknaði þann þriðja af hrinu íkveikja í byggingum og bíl sem tengdust Starmer í fyrra. Mennirnir kveiktu meðal annars í húsi þar sem Starmer bjó áður en hann flutti í Downing-stræti og bíl sem hann átti áður. Í málinu kom fram að Roman Lavrynovych, 22 ára Úkraínumenni, hefði verið lofað greiðslu fyrir íkveikjuna frá rússneskumælandi manni á samfélagsmiðlinum Telegram. Ekki var farið nánar ofan í saumana á hver sá maður væri í réttarhöldunum. Nú segir breska ríkisútvarpið BBC hins vegar maðurinn sem greiddi fyrir íkveikjurnar sé að öllum líkindum Evgení Ljúkshin, ungur rússneskur diplómati og sendur hátt setts rússnesks erindreka. Hann hafi meðal annars lagt stund á nám í upplýsingahernaði hjá njósnurum og áróðursmeisturum Kremlar. Greiddu fólki fyrir spellvirki Ljúkshin er þannig talinn hafa verið framarlega í flokki rússneskra útsendara sem héldu úti fjölda samfélagsmiðlareikninga þar sem þeir létust annars vegar vera samtök breskra öfgahægrimanna og múslima. Þeir greiddu fyrir skemmdarverk sem var ætlað að ala á sundrung og sá ótta í Bretlandi. Lavrynovych fékk Ljúskhin til liðs við sig í gegnum Telegram-rás fyrir Úkraínumenn í leit að vinna í Bretlandi. Áður en til íkveikjanna kom hafði Lavrynovych verið lofað greiðslum og síðar rússneskum ríkisborgararétti fyrir að hengja upp áróðursveggspjöld fyrir fölsk öfgahægrisamtök. Frá óeirðum breskra öfgahægrimanna eftir hnífstunguárás í Southport sem varð nokkrum börnum að bana árið 2024. Eftir óeirðirnar skaut upp kollinum gervigrasrótarhópur þeirra sem Rússar stóðu í raun og veru á bak við. Hópurinn greiddi fyrir skemmdarverk á moskum.AP/Richard McCarthy/PA Þessi meintu grasrótarsamtök kölluðu Rússarnir Direct Action UK. Þau spruttu upp eftir óeirðir í kjölfar dráps ungs manns á börnum í Southport haustið 2024. Hópurinn deildi færslum þar sem Starmer var kallaður svikari, alið var á andúð gegn múslimum og viljugum var boðið fé fyrir árásir á moskur og lögreglu. BBC fann sjö dæmi um að Rússarnir sem stóðu að Direct Action UK hefðu greitt fyrir skemmdarverk á moskum og skóla múslima í London í fyrra. Leiguliðar krotuðu slagorð gegn múslimum á byggingarnar en samtökin deildu síðan myndum af þeim á samfélagsmiðlum. Flökkuðu á milli múslimahaturs og íslamisma Áður en Direct Action UK varð til hafði sami hópur staðið að fölskum samtökum múslima sem hann kallaði Takbir-sjóðinn. Í gegnum hann bauð Telegram-notandinn sem er talinn hafa verið Ljúkshin fé þeim sem væru tilbúnir að krota áróður um íslamskt jíhad á veggi í breskum borgum til þess að æsa upp öfgahægrimenn. Telegram-notendur sem þóttust vera heittrúaðir múslimar skiptu síðan skyndilega yfir í harðskeytt múslimaandúð undir merkjum Direct Action skömmu síðar. Áróðurinn gegn múslimum sem Direct Action keypti birti svo sami hópur undir merkjum Takbir-sjóðsins í samfélagsmiðlahópum múslima til þess að tryggja að þeir fréttu af skemmdarverkunum. Breski hægriöfgamaðurinn sem var áður þekktur sem Stephen Yaxley-Lennon dreifði lygasögu Rússa um brennuvargana í Bretlandi. Yaxley-Lennon, sem er einnig þekktur sem Tommy Robinson, er nýkominn frá Rússlandi þar sem hann fundaði meðal annars með föður Elons Musk, eins helsta boðbera hvítrar þjóðernis- og öfgahægrihyggju í heiminum í dag.Vísir Rússarnir notfærðu sér einnig raunverulega breska öfgamenn í áróðrinum. Stephen Yaxley-Lennon, einnig þekktur sem Tommy Robinson, tók þannig upp á sína arma lygasögu rússneskra spunameistara um að mennirnir þrír sem voru handteknir vegna íkveikjanna hjá Starmer væru í reynd kynlífsverkamenn og að forsætisráðherrann hefði keypt sér þjónustu þeirra. Yaxley-Lennon birti meðal annars falsaða mynd af Starmer með sakborningunum þremur. Krill Dimitriev, sérstakur erindreki Vladímírs Pútín, deildi einni af færslum breska öfgamannsins um málið, að sögn BBC. Sonur fyrrverandi sendiráðsráðunauts í Danmörku BBC segir að þó að allar upplýsingar um Telegram-notandann sem lofaði fé fyrir íkveikjurnar passi við Ljúkshin þá hafi það ekki óyggjandi sannanir fyrir því. Nokkrum klukkustundum eftir að fjölmiðillinn sendi Ljúkshin spurningar um samfélagsmiðlahópana hurfu sumir þeirra af netinu, sem og mynd af Ljúkshin með varautanríkisráðherra Rússlands af rússneskri fréttasíðu. Ljúkshin þessi er sagður sonur rússnesks erindreka sem starfaði meðal annars í rússneska sendiráðinu í Danmörku. Telegram-notandinn í íkveikjumálinu stærði sig meðal annars af því að faðir hans læki í hann trúnaðargögnum frá NATO og bandarísku leyniþjónustunni vegna þess að hann hefði verið í Evrópu. Mikhail Zvintsjúk, rússneskur hernaðarbloggari sem rekur Telegram-rásina Rybar. Ljúkshin er sagður hafa verið þjálfaður í fjölmiðlaskóla Rybar í rússneskum skóla fyrir framtíðarerindreka sem utanríkisráðuneytið stýrir.Vísir/Getty Einn af lærufeðrum Ljúkshin virðist hafa verið Mikhail Zvintsjúk, stjórnandi Rybar, rússneskrar Telegram-rásar og hernaðarbloggara. Hann sætir þvingunaraðgerðum í Bretlandi og er eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir áróðursherðferð fyrir forsetakosningarnar þar árið 2024. Zvintsjúk þessi situr meðal annars í sérstökum starfshópi Pútín vegna stríðsins í Úkraínu. Heimildir BBC herma að bæði bresk og úkraínsk stjórnvöld hafi komist að þeirri niðurstöðu að rússnesk stjórnvöld hafi staðið að baki íkveikjunum í Bretlandi jafnvel þó að breska lögreglan telji sig ekki hafa sannanir fyrir aðild erlends ríkis. Rússneska sendiráðið í Bretlandi sagði BBC að það hafnaði öllum tilraunum til þess að bendla rússneska ríkið við lögbrot. Bretlandi stafaði engin ógn af Rússlandi.
Bretland Rússland Úkraína Hernaður Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira