Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Birgir Olgeirsson skrifar 16. júní 2026 11:35 Mennirnir eru allir í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. Slíkt er heimilt þegar sterkur grunur leikur á að sakborningur hafi framið brot sem getur varðað tíu ára fangelsi eða meira. Vísir/Vilhelm Fjórir menn sitja enn í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips.
Tveir mannanna, báðir skipverjar á Dettifossi, voru handteknir í aðgerðum lögreglu og tollgæslu í Sundahöfn þegar skipið kom til landsins 13. apríl síðastliðinn. Í framhaldinu voru fjórir til viðbótar handteknir og húsleit gerð á nokkrum stöðum vegna rannsóknarinnar. Þrír þeirra voru síðar látnir lausir en einn úrskurðaður í gæsluvarðhald ásamt skipverjunum tveimur. Fjórði maðurinn sem nú er í haldi var handtekinn vikuna eftir. Mennirnir fjórir verða í gæsluvarðhaldi til 6. júlí. Þá verða tólf vikur liðnar frá fyrstu handtökunum, en samkvæmt lögum má gæsluvarðhald á rannsóknarstigi að jafnaði ekki vara lengur en tólf vikur nema ákæra hafi verið gefin út. Héraðssaksóknari hefur því tæpar þrjár vikur til að taka ákvörðun um ákæru áður en gæsluvarðhaldið rennur út. Mennirnir eru allir í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. Slíkt er heimilt þegar sterkur grunur leikur á að sakborningur hafi framið brot sem getur varðað tíu ára fangelsi eða meira. Samkvæmt almennum hegningarlögum getur innflutningur á ávana- og fíkniefnum varðað allt að tólf ára fangelsi. Mennirnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri. Þrír þeirra eru fæddir hér á landi en sá fjórði fluttist til Íslands og hlaut síðar íslenskan ríkisborgararétt.
Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Lögreglumál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira