„Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. júní 2026 14:02 Óskar Hrafn er spenntur fyrir stórleiknum. Vísir/Ernir Eyjólfsson Víkingur og KR mætast í toppslag Bestu deildar karla í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, lítur á leikinn sem gott tækifæri til að máta sína menn við besta lið landsins.
KR hefur verið á frábæru flugi í sumar undir stjórn Óskars og situr sem stendur þremur stigum á eftir toppliði Víkings. Uppselt er á leikinn í kvöld. „Við ætlum að keyra á þá“ „Það er mikil eftirvænting sem ríkir í herbúðum okkar KR-inga fyrir þessum leik, það er alveg ljóst. Við erum búnir að vinna eftir ákveðinni hugmyndafræði í töluverðan tíma núna, þannig að ég held að ég sé ekki að ljóstra upp neinu leynarmáli þegar ég segi: Við ætlum að keyra á þá,“ sagði Óskar Hrafn í samtali við Vísi fyrir toppslaginn. View this post on Instagram „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Umræðan í kringum þennan toppslag hefur verið á þann veg að þetta sé mikilvægasti leikur sumarsins. Annað hvort muni KR vinna og veita Víkingi samkeppni, eða Víkingur muni vinna og drepa alla spennu í mótinu. Óskar er ósammála því. „Nei mér finnst nú vera það mikið eftir af þessu móti, að hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið. Við höfum meira horft á þetta sem tækifæri til að sjá hversu langt við erum komnir sem lið. Að fara á erfiðan útivöll og mæta liði sem hefur ekki tapað í tæpt ár í deildinni. Þeir eru á feykilega góðu skriði og langbest mannaða lið landsins. Ég held að þetta sé góð mælistika á okkur sjálfa, það er mikilvægt að missa ekki sjónar af því. Um leið og menn fara að hugsa um þetta sem einhvern úrslitaleik, þegar mótið er ekki einu sinni hálfnað, þá magnast spennan og menn stjórnast af atburðinum, frekar en að hafa stjórn á honum sjálfir.“ View this post on Instagram „Við trúum því sem við gerum“ Toppliðin tvö, Víkingur og KR, eru ákveðnar andstæður. Víkingarnir spila mjög skipulagðan og þolinmóðan leik en KR er hrifnari af því að keyra upp hraðann og hleypa leiknum í eitthvað kaos. „Við þurfum að gera hlutina hratt. Komast í stöður þar sem við getum sært þá. En við áttum okkur á því að Víkingar fá hvorki mörg skot, færi eða mörk á sig. Þannig að við þurfum að nýta hvert einasta tækifæri sem gefst. Aðalmálið fyrir okkur verður að gera hlutina hratt og gera þá vel. Við getum ekkert verið að dúlla okkur eitthvað mikið með boltann, þá loka þeir okkur inni. Það eru alveg möguleikar á móti Víkingi, við þurfum bara að nýta þá. Það mikilvægasta er, þegar þú horfir á þetta; hversu mörg færi þeir eru búnir að fá á sig, hversu fá mörk þeir fá á sig, að fallast ekki hendur og líta ekki á þetta sem vonlaust verkefni. Það er mikilvægt að menn trúi. Mér líður stundum eins og lið mæti til leiks á móti Víkingi og hafi ekki alveg trú á því að það geti raunverulega sært þá. Sem er einn af styrkleikum Víkings, en við trúum því sem við gerum.“ Síðustu leikir Amin Cosic? Amin Cosic í baráttunni með KR í leik gegn Stjörnunni.Vísir/Ernir Eyjólfsson Amin Cosic hefur verið öflugur í liði KR í sumar og er sterklega orðaður við brottför. Viking, topplið Noregs, er sagt áhugasamt. „Það er ekkert frágengið eða slíkt. Ég held samt að menn séu að stinga höfðinu í sandinn ef þeir horfast ekki í augu við það að hann fari líklega í næsta glugga. Það er líklegra en ekki. Við treystum bara á að hann noti næstu leiki til að enda þetta á sama krafti og hann hefur sýnt í sumar.“ Er búið að finna eftirmanninn, Jason Daða Svanþórsson? „Ég hitti hann um daginn og það var gaman að spjalla við hann, en það er ekkert að frétta þar.“
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira