„Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Jakob Bjarnar skrifar 18. júní 2026 15:44 Nýr bæjarstjóri, Vilhjálmur Árnason, lætur minnihlutann ekki eiga neitt inni hjá sér og svarar Guðnýju Birnu, oddvita Samfylkingarinnar, fullum hálsi. vísir/vilhelm Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fær það óþvegið frá minnihlutanum í bæjarstjórn sem gagnrýnir bæði launakjör hans, sem þau segja ofurlaun, sem og það að hafa ráðið sér aðstoðarmann sem ekki er gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun. Vilhjálmur lætur minnihlutann ekki eiga neitt inni hjá þér og sakar hann um á móti að standa fyrir bulli og upplýsingaóreiðu.
Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fær það óþvegið frá minnihlutanum í bæjarstjórn sem gagnrýnir bæði launakjör hans, sem þau segja ofurlaun, sem og það að hafa ráðið sér aðstoðarmann sem ekki er gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun. Vilhjálmur lætur minnihlutann ekki eiga neitt inni hjá þér og sakar hann um á móti að standa fyrir bulli og upplýsingaóreiðu. Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknarflokks, sem skipuðu fráfarandi meirihluta, sóttu hart að Vilhjálmi á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag og greiddu fulltrúar atkvæði gegn ráðningu hans og gagnrýndu „ofurlaunasamning“ hans. DV greindi frá þessu nú fyrr í morgun og vitnar í fund bæjarstjórnar. Vilhjálmur gaf það út að hann myndi ekki hætta á þingi fyrr en það lægi fyrir að hann myndi verða bæjarstjóri. Hermann Nökkvi ekki í hálfu starfi Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingarinnar segir gagnrýnina snúa að ýmsum þáttum. Hún segir til að mynda misskilnings gæta í frétt DV en það komi út eins og Hermann Nökkvi Gunnarsson, nýráðinn aðstoðarmaður Vilhjálms, sé í hálfu starfi. Þetta sé ekki rétt. Hann er ráðinn til sex mánaða en hann er ekki í hálfu starfi. Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingarinnar segir Vilhjálm með ofurlaun og telur hann ekki fylgja áður boðuðu gegnsæi við upplýsingar um kjör sín og annarra.vísir/vilhelm „Aðstoðarmaður bæjarstjóra var til staðar en hún var svo flutt í annað starf fyrir tveimur árum. Það hefur ekki verið einstaklingur í þessu starfi síðan, enda ekki á fjárhagsáætlun.“ Guðný segir furðu sæta hversu skjótt veður skipist í lofti, þeir sem áður voru gagnrýnir á opinber útgjöld setji ekki fyrir sig útgjöldin þegar þeir sjálfir eigi í hlut. Þá séu þeir blindir. „Varðandi laun Vilhjálms þá finnst okkur sérstakt að hann fari á sömu laun og bæjarstjóri með 12 ára reynslu. Er það eðlilegt? Svo er hann, ólíkt fyrrum bæjarstjóra, að fara í stjórnir. Launin eru ekki föst tala.“ Óreyndur maðurinn taki full laun fyrir stöðuna Guðný segir þetta skort á gegnsæi. Af hverju ekki að leggja þetta á borðið? Og gildir þá einu hvort bærinn eða einhver annar greiðir þann kostnað. „Hann segir að hann sé að fá 2,6 milljónir plús laun fyrir að sitja í bæjarstjórn, það eru 240 þúsund ofan á það. Svo er hann að fara að taka sæti í þremur stjórnum. Þó að hann hafi þingreynslu hefur hann enga reynslu af því að stýra svona stóru batteríi, hann hefur ekki verið bæjarstjóri áður. Gagnrýnin okkar snýr að því að hann er með öllu þessu að fara á ofurlaun.“ Gunnlaugur Kárason oddviti Miðflokksins er nú forseti bæjarstjórnar og Villhjálmur bæjarstjóri. Þeir mynda nýjan meirihluta í Reykjanesbæ og þegar er hart að þeim sótt.vísir/vilhelm Guðný segir gagnrýnina ekki snúa persónulega að Vilhjálmi en hún hafi ekkert á móti honum en fyrrverandi bæjarstjórn hafi tvisvar á síðasta kjörtímabili lækkað laun bæjarstjóra. Þá segir hún það ekki fyrirliggjandi hvað Hermann Nökkvi sé með í laun sem aðstoðarmaður. Að sögn Guðnýjar lagði minnihlutinn að auki fram tillögu um að laun forseta bæjarstjórnar, sem er Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, verði lækkuð því þau miðist við ábyrgð sem því fylgir að vera varabæjarstjóri. Því sé ekki til að dreifa lengur, lögmaður bæjarins hefur tekið það hlutverk að sér, en sú tillaga var felld af meirihlutanum. Hræsnisfullur málflutningur minnihlutans Vilhjálmur var upptekinn á fundi með velferðarsviðinu í allan dag en Vísi tókst að ná tali af honum þegar þeim fundi lauk. Vilhjálmur var spurður hvort hann væri hræsnari, vildi gagnrýna opinber útgjöld en sæi svo ekkert slíkt þegar kemur að honum sjálfum? „Þetta er náttúrlega bara eina hræsnin, þessi málflutningur þeirra. Þær vita betur. Það var farið yfir ráðningarsamninginn á 2. fundi bæjarstjórnar og þau eru með þessu að stuðla að upplýsingaóreiðu og ósannindum,“ segir Vilhjálmur. Halldóra Fríða Þórólfsdóttir oddviti Framsóknar var áður í meirihluta og henni þykir sérkennilegt að Vilhjálmur hafi, utan fjármáláætlunar, ráðið sér aðstoðarmann. vísir/vilhelm Vilhjálmur segist ekki vera á ofurlaunum. „Nei, nei. Ég ætla ekki að segja að ég sé á lágum launum en þetta eru ekki ofurlaun.“ Vilhjálmur segir útgangspunktinn þegar ráðningarsamningur hafi verið gerður að hann væri á nákvæmlega sömu kjörum og fráfarandi bæjarstjóri var á. „Og ég er á er á lægri kjörum en hann ef þú tekur bara bæjarstjóralaunin. Launin hans voru 2.872 á mánuði en ég mun fá sem bæjarstjóri fá 2.630.942. Þannig að munurinn þarna er nákvæmlega sá sem ég fæ greitt fyrir að vera kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn. Ég má ekki afþakka þau laun samkvæmt sveitarstjórnarlögum.“ Segir spara sveitarfélaginu 4,4 milljónir á ári Að sögn bæjarstjórans er fréttin í þessu sú að hann er, þegar allt er tekið, að spara sveitarfélaginu 4,4 milljónir árlega. Hvernig má þetta vera? Bæjarstjórinn Vilhjálmur Árnason segir fréttina í málinu vera að hann spari sveitarfélaginu 4,4 milljónir árlega.vísir/vilhelm „Ég afþakka allar greiðslur fyrir fundi. Það að lækka launin mín um þetta frá því sem hann var á plús að ekki þarf ekki að borga mér fyrir að sitja fundinn. Samanlagt gera það 4,4 milljónir á ári. Ef ég væri bara bæjarstjóri og bæjarfulltrúi á fullum launum væru það 4,4 milljónir. Þetta er stóra fréttin,“ segir Vilhjálmur. Hann segir ráðningu sína sparnað fyrir sveitarfélagið, rétt eins og þeir sögðu til um í kosningabaráttunni; að þeir ætluðu að hagræða í yfirbyggingunni og byrja á sjálfum sér. Þeir hafi nú fækkað nefndum og spari þar 10 milljónir á ári. En hvað vill Vilhjálmur segja um að rétt sé að hann leggi launakjör sín á borðið í nafni gagnsæis, engu skipti hvort sveitarfélagið eða einhver annar greiði kjör hans? „Þetta er algjörlega galið. Ráðningarsamningur minn er við Reykjanesbæ. Ég reyndi að fara í eins fáar nefndir og ráð fyrir utan starfið mitt.“ Langsóttasta bull sem Vilhjálmur hefur heyrt Vilhjálmur segir að þær Guðný Birna Guðmundsdóttir og Halldóra Fríða Þórólfsdóttir oddviti Framsóknar hafi verið í þeim nefndum. „Ég valdi að fara í nefndir sem skipta sveitarfélagið okkar máli pólitískt. Það getur vel verið að ég fái eitthvað greitt fyrir það, ég hef bara ekki hugmynd um það.“ Vilhjálmur segist ekki hafa gert ráðningarsamning til langs tíma um sæti í neinum nefndum. „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt. Ég er til að mynda ekki í neinni nefnd eins og stjórn Hitaveitunnar, eins og þær sjálfar voru.“
Reykjanesbær Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Kjaramál Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Tengdar fréttir Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. 14. apríl 2026 16:51 Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira
Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst. 14. apríl 2026 16:51