Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 19. júní 2026 14:03 Það er eðlilegt að boðaðar breytingar í frumvarpi á réttindagæslu fatlaðs fólks veki spurningar og jafnvel áhyggjur í þeirra röðum. Fatlað fólk og aðstandendur þess hefur í gegnum tíðina þurft að berjast fyrir réttindum sínum. Reynslan kennir okkur líka að aldrei má slaka á þegar kemur að mannréttindum og vernd þeirra sem standa höllum fæti. Þess vegna ber okkur að taka áhyggjur sem fram hafa komið frá Þroskahjálp og öðrum hagsmunasamtökum alvarlega. Umræðan hefur þó að nokkru leyti fremur snúist um framkvæmd réttindagæslunnar en efni frumvarpsins sjálfs. Mikilvægt er að hafa í huga að Alþingi hafði þegar ákveðið með lögum um Mannréttindastofnun Íslands að réttindagæsla fatlaðs fólks skyldi færð undir stofnunina. Flutningur málaflokksins var því ekki ákveðinn með frumvarpi um réttindavernd fatlaðs fólks. Frumvarpinu er hins vegar ætlað að uppfæra og styrkja lagarammann í samræmi við mannréttindasjónarmið og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Áhyggjur Þroskahjálpar hafa einkum lotið að því hvort réttindagæslan verði nægilega sýnileg, aðgengileg og virk í framkvæmd. Bent hefur verið á mikilvægi vettvangsheimsókna, frumkvæðiseftirlits, nærveru um land allt og stuðnings við fólk sem getur ekki alltaf talað fyrir sig sjálft. Þetta eru mikilvægar ábendingar og að mínu mati rétt að fylgjast vel með því hvernig nýtt fyrirkomulag reynist í framkvæmd. Hlutverk Mannréttindastofnunar Um leið er mikilvægt að skýra hvað Mannréttindastofnun gerir í raun og veru. Stundum hefur verið látið að því liggja að stofnunin sinni ekki einstaklingum vegna þess að hún taki ekki ákvarðanir í einstökum málum. Það er misskilningur. Stofnunin tekur ekki bindandi stjórnvaldsákvarðanir og kemur ekki í stað dómstóla eða úrskurðarnefnda, en hún vinnur engu að síður náið með einstaklingum. Hún veitir ráðgjöf og leiðbeiningar, aðstoðar fólk við að leita réttar síns, styður það í samskiptum við stjórnvöld og þjónustuaðila, tekur við ábendingum og kvörtunum og getur tekið mál upp að eigin frumkvæði þegar tilefni er til. Hún sinnir einnig eftirliti með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Réttindagæslan er enn að mótast Hafa skal í huga að réttindagæslan er enn að móta verklag sitt innan stofnunarinnar. Stofnunin mun fjölga heimsóknum um land allt, funda með notendaráðum fatlaðs fólks og leggja sérstaka áherslu á að ná til þeirra sem síst eru líklegir til að leita sér aðstoðar sjálfir. Þetta eru mikilvægar upplýsingar því reynslan af nýju fyrirkomulagi er enn takmörkuð. Það er þess vegna of snemmt að fullyrða að fyrirkomulagið muni ekki virka. Mikilvægar breytingar í nefnd Í meðförum velferðarnefndar voru jafnframt gerðar breytingar sem styrkja stöðu fatlaðs fólks verulega. Áherslan var færð frá verndarhyggju yfir í sjálfsákvörðun og stuðning við ákvarðanatöku. Orðalagi var breytt þannig að lögin fjalla nú um einstakling sem „þurfi á stuðningi við ákvarðanatöku að halda“ fremur en að hann „eigi erfitt með að gæta hagsmuna sinna“. Einnig var sérstaklega kveðið á um að við val á persónulegum talsmanni skuli eftir fremsta megni byggja á upplýstu samþykki og skýrum vilja einstaklingsins sjálfs. Þetta eru breytingar sem falla vel að þeirri hugmyndafræði sem bæði samningur Sameinuðu þjóðanna og hagsmunasamtök fatlaðs fólks hafa lengi lagt áherslu á. Auk þess hafa sjálfsákvörðunarréttur, virðing og valdefling fatlaðs fólks verið meðal grundvallaráherslna Flokks fólksins frá upphafi í meðförum þessa máls. Vegferð sem heldur áfram Það er því hægt að halda tvennu fram á sama tíma. Annars vegar að áhyggjur af framkvæmd réttindagæslunnar séu réttmætar og vert sé að fylgjast grannt með því hvort Mannréttindastofnun fái nægt bolmagn og næga nærveru um land allt. Hins vegar að frumvarpið sjálft sé skref fram á við fyrir réttindi fatlaðs fólks. Það styrkir sjálfsákvörðunarrétt, þar er lögð meiri áhersla á vilja einstaklingsins og færir íslenska löggjöf nær þeim mannréttindaviðmiðum sem samningur Sameinuðu þjóðanna byggir á. Réttindavernd fatlaðs fólks verður aldrei fullkomin með einni lagasetningu. Hún krefst stöðugrar endurskoðunar, gagnrýninnar umræðu og vilja til umbóta. Þar eigum við öll sama markmið: Að tryggja að fatlað fólk njóti sömu réttinda, virðingar og tækifæra og aðrir. Þegar reynsla er komin á nýtt fyrirkomulagi eigum við að vera tilbúin til að bregðast við ef þörf reynist á frekari úrbótum. Það er ekki veikleiki heldur styrkur lýðræðisins. Höfundur er þingkona Flokks fólksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannréttindi Flokkur fólksins Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun