Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 09:05 Björg Eva segir að nýta eigi heimildir til að sekta að fullu við slíkum brotum. Samsett Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir óþolandi og óþarfi að erlendir ferðamenn séu staðnir að utanvegaakstri ár eftir ár. Hún segir þurfa að nýta heimildir til viðurlaga betur og það þurfi samstillt átak stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um að gæta þess að allir sem heimsæki landið, innlendir og erlendir, gangi vel um það.
Björg Eva segist hafa talað við margt fólk um atburði helgarinnar þegar hópur franskra ferðamanna var staðinn að utanvegaakstri á nokkrum stöðum um landið. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um grófan utanvegaakstur um helgina og var málið unnið með landverði. Tveir erlendir ferðamenn óku Land Rover jeppum og ollu skemmdum meðal annars við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið. Björg Eva starfar sem landvörður á sumrin og segist því vita vel hversu mikill tími og vinna landvarða fer í að hylja spor, raka yfir og bæta tjón. „Þú bætir það ekkert að öllu leyti,“ segir hún og að ef það ætti til dæmis að raka slóðana sem frönsku ferðamennirnir fóru yfir væri það töluvert verk auk þess sem það myndi eflaust alltaf sjást. Björg Eva var til viðtals um málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Oft er ekki hægt að laga svona,“ segir hún og að á söndum taki það mjög langan tíma. „Þetta á ekki að vera nauðsynlegt.“ Hún segir utanvegaaksturinn að einhverju leyti utan friðlands þannig að það séu engir landverðir til að laga hann og hún viti ekki hvort það sé sveitarfélagið eða einhver annar sem taki við. Björg Eva segir að síðast þegar svona kom upp hafi verið talað um að stórauka fræðslu og hún hafi verið aukin að einhverju leyti en það sé stundum áberandi að fólk viti alveg en brjóti samt af sér. „Það ætlar að gera þetta og það er mjög margt hægt að gera til að bæta úr þessu. Þetta eru vettlingatök og virðingarleysi við náttúruna að það hafi ekki verið gert,“ segir Björg Eva. Eins og ef það væru engar umferðarreglur Hún telur, til dæmis, að í þessu tilfelli hafi þurft að færa lögreglunni fólkið á silfurfati. Lögreglan sé ekki sýnileg á hálendinu og þetta jafngildi því að það séu ekki umferðarreglur á þjóðvegum. „Vegna þess að þetta er ólöglegt, fólk er að gera þetta, en þegar náttúran á í hlut eru engin viðurlög. Þú mátt ekki keyra yfir á rauðu ljósi án þess að fá sekt. En þú mátt brjóta af þér í náttúrunni og færð ekki sekt nema þú valdir sannarlegu og miklu tjóni.“ Hún segir landverði hafa lýst því að svo að það yrði brugðist við hafi þurft mikla samstöðu hálendis, til að koma fólkinu undir manna hendur, og þar séu þeir áfram teknir vettlingatökum. „Svo stóð á skilti á bílnum þeirra: Þú getur keyrt hratt, ég get keyrt alls staðar. Þannig leit út fyrir að þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera.“ Björg Eva segir Landvernd telja að nýta ætti heimildir til viðurlaga við slíkum brotum í náttúrunni betur en núna er gert, upp í topp. Hæsta sektin milljón „Þessir menn áttu ekkert aftur að fara á þessum bílum upp á hálendi eftir að þeir voru búnir að reiða fram þessa sekt sem við vitum ekki hversu há hún var. Það var alveg fáránlegt.“ Hún segir hæstu sektargreiðsluna geta verið eina milljón og þau viti ekki til þess að slík heimild hafi verið nýtt. Fjallað var um málið í Bitinu í gær og þar lagði einn viðmælandi til að tæki fólks yrðu hreinlega gerð upptæk. Björg Eva telur að þetta þurfi að bæta og segir ráðherra umhverfismála þurfa að taka við og skoða málið. Hún segir það vandamál að það séu ekki landverðir um allt land og þeir sjái alls ekki allt sem gerist á hálendinu og því sjáist alls ekki allur svona utanvegaakstur. Megi ekki auglýsa Ísland eins og „villta vestrið“ Þáttastjórnendur spyrja hvort að bæklingur við komu með fræðslu myndi duga en Björg Eva telur meira þurfa til. Til dæmis sé mikilvægt að Ísland sé ekki auglýst eins og „villta vestrið“ þar sem allt megi. „Ég hef séð auglýsingar sjálf þar sem eru svona flott tryllitæki úti í náttúrunni,“ segir hún og að það sé ekki heppilegt. „Við þurfum að átta okkur á því að þetta eru engin smá verðmæti sem er verið að eyðileggja,“ segir hún og að hálendisfólkið viti að þetta eigi eftir að bitna á öllum. „Á endanum verða svæði sem eiga í hættu að verða eyðilögð, þeim verður lokað.“ Hún segir þurfa þjóðarsátt fyrirtækja og stjórnvalda um að gera betur, virða náttúruna og dýrmæti hennar. „Það á að leggja þetta að líkum við það að mennirnir bara kæmu og rústuðu verslunarmiðstöð og tækju þar sem þeim sýndist. Það myndu þeir ekki komast upp með, og þetta er verra.“ Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni að ofan.
Utanvegaakstur Umhverfismál Félagasamtök Bítið Lögreglumál Skaftárhreppur Rangárþing eystra Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira