Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Smári Jökull Jónsson skrifar 23. júní 2026 18:31 Guðrún Hafsteinsdóttir hefur ástæðu til að vera upplitsdjörf. Lýður Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokka á landsvísu. Viðreisn og Flokkur fólksins tapa báðir fylgi og stuðningur við ríkisstjórnarflokkana er nú það lægsta frá því núverandi stjórn tók við völdum.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem gerð var dagana 2. - 11. júní síðastliðinn en rúmlega 1700 manns tóku afstöðu til flokka í könnuninni. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 22,7% fylgi í könnuninni og bætir við sig tæpum þremur prósentum milli kannanna. Fylgi Samfylkingar er nánast óbreytt í 25,2% og fylgi Miðflokks dalar örlítið. Viðreisn og Flokkur fólksins tapa báðir fylgi og er fylgi Flokks fólksins tæpum tíu prósentum minna en í kosningunum í desember 2024. Þá er Framsókn með 8,5% og VG 5,4% og kæmist á þing. „Ég held að stærstu fréttirnar séu þær að Sjálfstæðisflokkurinn er á mikilli siglingu eins og hann er búinn að vera í undanförnum könnunum og frá sveitarstjórnarkosningum, en líka bara allt þetta ár. Þannig að hann má alveg prísa sig sælan,“ segir Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Styrkir stöðu formanns Sjálfstæðisflokksins Eva segir erfitt að benda á eina ástæðu fyrir fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins. „Þetta hjálpar klárlega formanninum, þetta styrkir klárlega hennar stöðu innan flokksins. Þannig að það verður kannski minni styr um hana,“ bætir Eva við um stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna ekki mælst minna frá því í kosningunum fyrir tæpum tveimur árum. Samfylkingin mælist yfir kjörfylgi en bæði Viðreisn og Flokkur fólksins tapa fylgi og mælist Flokkur Fólksins utan þings. Fylgi stjórnarflokkanna fór mest í 54% í júlí í fyrra og hefur lækkað um rúm 12% síðan þá. Þarf Flokkur fólksins að hafa áhyggjur? „Ég held að flokkurinn þurfi ekki að örvænta. En við erum búin að sjá það í síðustu kosningum að flokkar geta fallið út af þingi, líka gamlir flokkar.“ Stjórnin myndi standa af sér ef þjóðin segir nei Eva telur að ef þjóðin svarar nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhaldandi ESB-viðræður komi krafa frá stjórnarandstöðunni um að ríkisstjórninni beri að víkja. „Ég myndi segja að já-ið myndi vera gott fyrir Viðreisn sérstaklega og kannski Samfylkinguna líka því þau eru hlynnt ESB aðild. Nei-ið yrði erfiðara en ég held þau myndu alveg standa það af sér.“ Hversu traustum fótum stendur ríkisstjórnin? „Ég sé ekki betur en hún sé komin til að vera,“ segir Eva að lokum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Miðflokkurinn Viðreisn Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Skoðanakannanir Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira