Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Árni Jóhannsson skrifar 23. júní 2026 21:34 Guðni var lýsti því yfir að hann var mjög pirraður eftir leikinn í kvöld. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Þjálfari FH, Guðni Eiríksson, gat ekki leynt því hversu pirraður hann væri á því að hafa ekki fengið öll stigin í viðureign FH og Vals í kvöld. FH fékk urmul færa en mislagðar fætur FH-inga og frábær frammistaða Tinnu Brár í marki Vals kom í veg fyrir fleiri mörk.
Leikurinn endaði 1-1 og var Guðni spurður að því hversu pirraður hann væri. „Ég er hrikalega pirraður maður. Hrikalega pirraður. Já, ég verð einhvern tíma að ná mér niður eftir þetta. Það er hrikalega svekkjandi að fá bara eitt stig út úr þessum leik.“ Er það ekki færanýtingin sem kom í veg fyrir sigurinn ekki satt? „Jú klárlega. Það er hægt að setja upp leik og hægt að búa til leiðir fyrir leikmenn liðsins en svo er komið inn í vítateig andstæðingsins. Þá er komið að einstaklingnum að framkvæma hlutina og þær gerðu það engan vegin í dag. Ef að þú ætlar að nýta færin og stöður þínar jafn illa og FH liðið gerði í dag þá er ekki á vísan að róa í þessu.“ „Þær skora úr þessu eina færi sem þær fengu í fyrri hálfleik. Við gáfum þeim það að sjálfsögðu. Það var líka svekkjandi og ekki í fyrsta sinn sem við gefum svona færi frá okkur. Það er svo verst við þetta hvað það er langt í næsta leik. Nú er pása og það er sárt að þurfa að bíða og ekki getað svarað fyrir þennan leik.“ Leikmönnum FH hlýtur samt að vera vorkunn að hitta fyrir Tinnu Brá Magnúsdóttur í miklum ham í marki Vals. „Það er alveg hárrét hjá þér, hún varði vel. Ég vil samt meina það að við hjálpuðum henni ansi mikið að verja eins og hún gerði. Nú er ég ekki að draga neitt úr hennar hæfileikum, hún gerði vel en við hefðum átt að gera mikið betur. Sökin liggur hjá leikmönnum FH liðsins.“
FH Besta deild kvenna Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Sjá meira