Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 09:01 Tiger Woods hélt stutta tölu en svaraði engum spurningum. Getty/Andrew Redington/ Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods kom fyrst fram opinberlega í gær frá því hann var handtekinn í lok mars. Tiger mætti og kynnti forstjórann Brian Rolapp á blaðamannafundi á TPC River Highlands.
Woods flaug til Hartford í Connecticut í vikunni til að sitja stjórnarfund þar sem samþykktar voru verulegar breytingar á framtíðarfyrirkomulagi PGA-mótaraðarinnar. Hann sneri aftur til Bandaríkjanna fyrir nokkrum vikum eftir að hafa farið í meðferð í Sviss í kjölfar handtöku fyrir ölvunarakstur á Jupiter Island í Flórída. Forréttindi að hafa Tiger með Woods, sem er fimmtugur, var formaður framtíðarkeppnisnefndarinnar, sem vann stóran hluta af undirbúningsvinnunni fyrir þær breytingar sem taka gildi árið 2028, þar á meðal að kylfingar keppi annaðhvort í meistaradeild eða áskorendadeild og endurskipulögðu úrslitakeppni. The first public remarks and appearance from Tiger Woods since his car accident in March. pic.twitter.com/RoOy9kskRw— David Rumsey (@_DavidRumsey) June 23, 2026 „Ég tel að það hafi verið gríðarlegur styrkur og forréttindi að hafa Tiger með,“ sagði Rolapp. „Innsýn hans í leikinn sem leikmaður, en einnig þar sem hann hefur verið í kringum hann allt sitt líf, er ómetanleg. Forysta hans hefur því verið frábær. Við erum heppin að hafa hann,“ sagði Rolapp Tók ekki við spurningum Woods las upp úr undirbúini yfirlýsingu áður en hann kynnti Rolapp og tók ekki við spurningum. Woods fylgdist með stórum hluta blaðamannafundarins standandi í herberginu. Woods kom aftur á svið í lok blaðamannafundarins þegar Gorder, stjórnarformaður PGA Tour Enterprises og stefnumótunarráðs PGA-mótaraðarinnar, tilkynnti að Rolapp myndi gegna starfi forstjóra og framkvæmdastjóra eftir að fráfarandi framkvæmdastjóri, Jay Monahan, lætur af störfum í lok ársins. Æðislegt að sjá hann aftur „Það er frábært að sjá hann aftur,“ sagði Rolapp. „Tiger hefur tekið þátt í öllu ferlinu og lagt mikið af mörkum. Það er æðislegt að sjá hann aftur í góðu formi, svo við erum mjög spennt fyrir því,“ sagði Rolapp Woods var handtekinn grunaður um ölvunarakstur og fyrir að neita að gangast undir löglegt próf þann 27. mars eftir að jeppi hans rakst á kerru sem var dregin af vörubíl og valt á hliðina.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Haraldur Franklín nálgast Opna breska Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Bauluðu á verðandi US Open meistara Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Guðrún Brá og Birgir Björn Íslandsmeistarar í holukeppni Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Sjá meira