Fyrsta tilfelli ebólu staðfest í Frakklandi Freyja Þórisdóttir skrifar 24. júní 2026 16:49 Aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) ræðir við fjölmiðla um ebólufaraldurinn og alþjóðleg heilbrigðismál á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í dag, miðvikudaginn 24. júní. AP Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda.
Í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir að franski læknirinn hafi verið „lagður samstundis inn á sérhæfða deild“ og að ástand hans sé stöðugt, en það hafa þeir eftir franska heilbrigðisráðuneytinu. Austur-Kongó tilkynnti um ebólufaraldur í síðasta mánuði, en í fréttinni er greint frá því að sérfræðingar telji veiruna hafa verið í umferð vikum saman áður en faraldurinn var tilkynntur. Staðfest sé að ríflega tvö hundruð og sextíu manns hafi látist af völdum veirunnar í þessu Mið-Afríkuríki og að alls hafi um þúsund manns smitast. Er þetta fyrsta ebólutilfellið sem staðfest hefur verið í Evrópu en bandarískur læknir sem greindist í Austur-Kongó fékk meðferð á þýsku sjúkrahúsi í maí síðastliðnum. Almenningur hafi ekkert að óttast Úganda, nágrannaríki Austur-Kongó, hefur einnig staðfest ebólutilfelli þar í landi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur greint frá því í tilkynningum að tuttugu manns hafi þegar smitast í landinu og að tvö dauðsföll hafi verið staðfest. Unnið er að því að rekja þá sem kunna að hafa verið í snertingu við lækninn en heilbrigðisstarfsfólk er í sérstakri hættu vegna ebólu, sem smitast með líkamsvessum. Þá hefur forstjóri WHO, Tedros Adhanom Ghebreyesus, sagt enga ástæðu til þess að örvænta og heilbrigðisráðuneyti Frakklands lagði áherslu á að hættan fyrir almenning væri „mjög lítil“. Núverandi ebólufaraldur stafar af Bundibugyo-afbrigði veirunnar, en ekkert bóluefni er til við því og hefur Frakkland komið á fót „sérstöku eftirlitskerfi“ fyrir hjálparstarfsfólk sem snýr aftur frá Austur-Kongó, að því er haft eftir franska heilbrigðisráðuneytinu í frétt BBC.
Ebóla Frakkland Austur-Kongó Tengdar fréttir Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum. 26. maí 2026 11:30 Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna nýs ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó. Mikil hætta er sögð á að faraldurinn breiðist út til nágrannaríkjanna. 18. maí 2026 08:56 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Fleiri fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Sjá meira
Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum. 26. maí 2026 11:30
Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna nýs ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó. Mikil hætta er sögð á að faraldurinn breiðist út til nágrannaríkjanna. 18. maí 2026 08:56