Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2026 13:31 Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gilberto Mora leikið tíu leiki fyrir mexíkóska A-landsliðið. getty/Doug Zimmerman Mexíkóska ungstirnið Gilberto Mora varð í nótt yngsti leikmaður til að byrja inn á í leik á heimsmeistaramóti í 24 ár. Hann lét til sín taka og átti þátt í marki í leiknum gegn Tékkum.
Mexíkó vann 3-0 sigur á Tékklandi í lokaleik sínum í A-riðli HM í nótt. Mexíkóar hafa verið sterkir á heimavelli á mótinu og unnu alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni án þess að fá á sig mark. Javier Aguirre, þjálfari Mexíkó, gerði nokkrar breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Tékklandi á Azteca-leikvanginum í Mexíkó-borg. Mora var meðal þeirra sem komu inn í byrjunarliðið en hann er aðeins sautján ára og 101 dags gamall. Mora er yngsti leikmaðurinn til að byrja inn á í leik á heimsmeistaramóti síðan Femi Opabunmi var í byrjunarliði Nígeríu í markalausu jafntefli gegn Englandi í riðlakeppninni á HM 2002. Opabunmi var jafn gamall og Mora þegar hann spilaði gegn Englandi en aðeins tveir leikmenn hafa verið yngri á HM. Það eru Norður-Írinn Norman Whiteside (sautján ára og 41 dags gamall) og Kamerúninn Samuel Eto'o (sautján ára og 99 daga gamall). Opabumni spilaði aðeins sex landsleiki fyrir Nígeríu en fjórum árum eftir að hafa leikið á HM neyddist hann til að leggja skóna á hilluna vegna gláku. Hann er nú alveg blindur á hægra auga. Miklar vonir eru bundnar við sóknarmiðjumanninn Mora sem leikur með Tijuana í heimalandinu. Hann átti þátt í öðru marki Mexíkó gegn Tékklandi sem Julián Quinones skoraði á 61. mínútu. Ellefu mínútum síðar fór Mora af velli. Mora lék sinn fyrsta landsleik í Gullbikarnum síðasta sumar, þá aðeins sextán ára og 257 daga gamall. Hann er yngsti leikmaður í sögu mexíkóska landsliðsins. Ekki liggur enn fyrir hvaða liði Mexíkó mætir í 32-liða úrslitum HM en sá leikur fer fram á Azteca-leikvanginum á þriðjudaginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira