Ferðaþjónustutröll kaupir Ísbúð Vesturbæjar Agnar Már Másson skrifar 25. júní 2026 21:39 Ingólfur ferðaþjónn rekur fyrirtæki víða um land undir vörumerkinu Tröll, en félagið selur alls konar ferðir víða um land. Auk þess rekur hann hótel á Suðurlandi og Vestfjörðum. Samsett Mynd Félag ferðaþjónsins Ingólfs Ragnars Axelssonar, sem rekur Tröll ferðaþjónustu, hyggst kaupa Ísbúð Vesturbæjar af Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á 215 milljónir króna. Kaupin eru háð samþykki frá Samkeppniseftirlitinu.
Í afkomutilkynningu sem Bera birti í dag segir að dótturfélagið Kjarnavörur ehf., sem er allt í eigu Beru, hafi þann 8. júní selt allt hlutafé í Ísbúð Vesturbæjar ehf. til móðurfélags Trölls ferðaþjónustu ehf., en téð móðurfélag nefnist BlágrýtiOI og er í 100 prósenta eigu Ingólfs Ragnars. Heildarvirði Ísbúðarinnar í viðskiptunum var 215 milljónir króna en kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins, að því er fram kemur í afkomutilkynningunni fyrir fyrsta ársfjórðung. Tröll ferðaþjónusta velti 3,2 milljörðum króna árið 2024 en skilaði þó 25 milljóna króna tapi það ár, samkvæmt ársreikningi. Ársreikningur fyrir 2025 hefur ekki verið birtur. Ísbúðin velti um 582 milljónum króna árið 2024 og skilaði þá 12 milljóna króna hagnaði. Rúmlega ár er liðið frá því að Ölgerðin keypti Kjarnavörur í febrúar 2025 en þá fylgdi með 100 prósenta eignarhlutur í Ísbúð Vesturbæjar. Auk Trölls ferðaþjónustu á BlágrýtiOI hundrað prósenta hlut í félögunum Tröll tækjum, Rhýólít, Tröll Vík, Hvalvörðugilslæk ehf., Um Hverfis Jörðina, Hótel Hrífunes, Vík Tröll Hóteli, Drangshlíð Hóteli og Tröllahóteli. Einnig er greint frá því í tilkynningunni að Kjarnavörur hafi þann 8. maí keypt alla útistandandi hluti í Innbak og eigi nú félagið að fullu, en fyrir áttu Kjarnavörur 68% hlut. Kaupverðið var 89 milljónir króna og var greitt í reiðufé, samkvæmt tilkynningunni.
Ís Ölgerðin Ferðaþjónusta Reykjavík Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira