Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Birgir Olgeirsson skrifar 26. júní 2026 11:54 Verð á óslægðum þorski er í hæstu hæðum vegna skorts á hvítfiski í Evrópu og skilar strandveiðisjómönnum nú mun hærra aflaverðmæti fyrir minni afla en áður. Vilhelm Verð á óslægðum þorski er nú tæplega fjörutíu prósentum hærra en í fyrra. Skortur er á hvítfiski í Evrópu sem má rekja til þess að veiðar á þorski í Barentshafi hafa dregist mikið saman og minna framboð af fiski frá Rússlandi.
Strandveiðisjómenn mega veiða 650 kíló í þorskígildum í hverjum róðri. Ef eingöngu er veiddur þorskur jafngildir það um 774 kílóum af óslægðum þorski. Á síðasta uppboði Reiknistofu fiskmarkaða fór óslægður þorskur á rúmar 640 krónur kílóið. Fjögur hundruð kíló, eða rétt rúmlega hálfur dagskammtur á strandveiðum, skila því um 256 þúsund krónum. Til að fá sömu upphæð þurfti að landa um 560 kílóum á strandveiðum í fyrra, um 630 kílóum árið 2024 og tæpum 800 kílóum árið 2019. Með öðrum orðum: Rúmlega hálfur dagskammtur í dag getur skilað svipuðu aflaverðmæti og nær fullur skammtur skilaði fyrir sjö árum. Hækkunin hófst síðasta haust Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands, segir verðhækkunina hafa tekið við sér þegar nýtt kvótaár hófst síðasta haust. „Þróun á fiskverði hefur verið ör hækkandi, sérstaklega frá því síðasta haust. Þetta byrjaði svona í september í fyrra þegar nýtt kvótaár byrjaði. Þá hefur fiskverð farið mjög hækkandi og mikil eftirspurn verið eftir fiski frá Íslandi,“ segir Ragnar. Skýringin liggur að stórum hluta utan Íslands. Þorskkvóti í Barentshafi fyrir árið 2026 er sextán prósentum minni en árið á undan og sá lægsti frá 1991. Barentshafið er eitt mikilvægasta þorskveiðisvæði heims og samdráttur þar hefur áhrif á verð langt út fyrir svæðið. Við bætist að rússneskur fiskur skilar sér síður inn á evrópskan markað vegna viðskiptaþvingana og óvissu í viðskiptum. „Markaðurinn lýsir sér frekar sem skortmarkaði. Það er skortur á fiski og þá eru menn tilbúnir að kaupa á hærri verðum. Það er meiri samkeppni um minna magn,“ segir Ragnar. Uppgjörin hærri en áður Hækkunin sést skýrt í uppgjörum hjá strandveiðisjómönnum. Ragnar segir sama túr nú geta skilað mun meira en í fyrra. „Við sjáum að aflaverðmæti hjá strandveiðisjómönnum hefur farið mjög hækkandi. Menn voru kannski að gera upp milli 300 og 400 þúsund í túr í fyrra, en eru komnir um og yfir 500 þúsund fyrir sama túr í ár,“ segir hann. Gæði fisksins skipta þó áfram máli. Ragnar segir meðalverð á þorski nú oft vera um og yfir 600 krónur kílóið og fara hærra þegar fiskurinn er góður. „Menn eru að gera upp meðalverð kannski á þorski um og yfir 600 kall. Og jafnvel upp á 700 ef menn eru með góðan fisk,“ segir Ragnar. Á Snæfellsnesi, þar sem Ragnar er staðsettur, segir hann muninn greinilegan þegar bátarnir koma að landi. „Þeir brosa allan hringinn. Maður sér það þegar þeir koma hérna að bryggju að menn eru mjög ánægðir,“ segir hann.
Strandveiðar Sjávarútvegur Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira