Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Sigurgeir Þorkelsson skrifar 26. júní 2026 17:27 Séra Hildur Eir vill opna á umræðuna og biður fólk að taka sér tíma í að melta þetta með sjálfu sér. Þjóðkirkjan - Vísir/vilhelm „Ég legg þetta til en almáttugur minn, þó ég sé nú stjórnsöm þá ræð ég þessu ekki ein,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir í pistli þar sem hún veltir því upp hvort sá siður í útförum að lesa upp kveðjur í lok minningarorða sé barn síns tíma. „
Hér er vissulega ekki um jafn stórt mál að ræða og aðildarviðræður við ESB en þó held ég að það sé ágætt að setja orð á þetta og leyfa fólki að melta í rólegheitum.“ Hildur býr að margra áratuga reynslu sem kirkjunnar þjónn. „Á árum áður þegar gamli sveitasíminn var einn við lýði og síðar skífusíminn og leiðir til að ná á fólki ekki jafn margar og í dag tóku prestar við kveðjum frá þeim sem ekki áttu heimangengt til útfarar og báru nánustu aðstandendum við athöfnina.“ Hildur þjónaði áður í Laugarneskirkju en þjónar í dag við Akureyrarkirkju. Hildur segir meðal annars um kveðjurnar að þær passi ekki inn í flæði athafnarinnar. „Ástæðan er sú að athöfnin er flæði þar sem tónlist og ritningarorð, tónlist og bænagjörð, tónlist og minningarorð, tónlist og moldun, tónlist og blessun renna saman í eitt og stundin verður að stórum faðmi heilags anda. Og svo koma allt í einu kveðjur og tilkynningar eins og úr afgreiðslunni í Hagkaup, sem reyndar hafa fyrir löngu verið aflagðar vegna þess að allir eru með síma.“ Heimurinn hafi breyst en kveðjurnar lifi enn „Enn í dag erum við prestar að bera kveðjur við útfarir, jafnvel þótt allt sé nú breytt og fólk alls staðar tengt símum og samfélagsmiðlum. Í dag er í rauninni mun erfiðara að láta EKKI ná í sig fremur en hitt.“ Sá yðar er syndlaus er Hildur er fyrst til að játa syndir sínar og viðurkennir að það búi einnig eiginhagsmunir að baki hugleiðingu hennar. Hún geti ekki flúið galla sína. „Ég er alltaf að klúðra þessum kveðjum, segja vitlaus nöfn og gleyma að bera þær og fæ svo í magann þegar ég átta mig á mistökunum. Prestar gætu, án kveðjanna, eytt meira af tíma sínum og orku í að skrifa falleg minningarorð. „Á sama tíma er ég líka að velta fyrir mér af hverju ég sé ekki frekar að eyða orkunni í að fínpússa ræðuna frekar en að vera í einhverjum spreng að taka saman kveðjur frá þeim sem eru erlendis eða jafnvel á staðnum en vilja samt koma þökkum á framfæri. Annað skipti meira máli en kveðja lesin af presti Þá er Hildur ekki sannfærð um hversu miklu kveðjurnar skila og bendir á litlar gjörðir sem sýnt geti aðstandendum að hugur ástvina þeirra leiti til þeirra. „Ég held reyndar að nánustu ástvinir [hins látna] séu lítið að meðtaka kveðjur við athafnir, það er ekki mín reynsla að þær hreyfi við tilfinningum en þó vil ég ekkert fullyrða um það,“ segir Hildur og heldur áfram: „Ég myndi samt miklu fremur … hafa beint samband við ástvini, senda á Messenger falleg orð eða baka hjónabandssælu eða hringja eða senda blóm. Ég þori að fullyrða að það gefur meira en upptalning nafna við útför og þá fær líka flæðið að vera í athöfninni.“
Þjóðkirkjan Trúmál Tengdar fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur. 17. apríl 2026 15:17 Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira
Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur. 17. apríl 2026 15:17