Endurkoma hjá Leikni í Breiðholtsslagnum og HK vann Fylki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2026 21:18 Afturelding vann langþráðan sigur í kvöld og endaði taphrinuna. Vísir/Pawel Cieslikiewicz HK, Leiknir og Afturelding fögnuðu öll góðum sigrum í kvöld í æsispennandi Lengjudeild karla í fótbolta.
HK vann 2-0 sigur á Fylki í Árbænum þar sem Dominik Radic skoraði fyrra markið undir lok fyrri hálfleiks. HK endaði leikinn tveimur mönnum færri eftir að Svavar Örn Þórðarson og Dagur Ingi Axelsson fengu báðir rautt spjald í lokin og þeir náðu samt að innsigla sigurinn þegar Aron Kristófer Lárusson skoraði annað mark liðsins á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Leiknismenn unnu 2-1 endurkomusigur á ÍR í Breiðholtsslagnum. Ágúst Unnar Kristinsson kom ÍR yfir í fyrri hálfleik en Þorsteinn Emil Jónsson jafnaði eftir tíu mínútna leik í fyrri hálfleik. Sigurmarkið skoraði síðan Shkelzen Veseli ellefu mínútum fyrir leikslok. Afturelding komst aftur á sigurbraut, eftir tvö deildartöp í röð, þegar liðið vann 2-0 sigur á Njarðvík. Bæði mörkin komu í lok leiksins. Joacim Holtan skoraði fyrra markið átta mínútum fyrir leikslok en það síðara skoraði Birkir Már Sævarsson í uppbótartíma. Grindavík og Ægir gerðu markalaust jafntefli í lokaleik kvöldsins. Afturelding er í 3. sæti með 19 stig, jafnmörg stig og Vestri og HK en með betri markatölu. Leiknismenn eru síðan aðeins stigi á eftir þessum þremur liðum en þeir hafa unnið fjóra af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Þróttur er á toppnum með 22 stig (og á leik inni) og Fylkir er enn í öðru sæti þrátt fyrir tapið en Fylkismenn hefðu farið á toppinn með sigri.
Lengjudeild karla HK Afturelding UMF Njarðvík Leiknir Reykjavík Fylkir ÍR UMF Grindavík Ægir Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira