Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 27. júní 2026 14:02 Undanfarnar vikur hafa margir hvatt þjóðina til að segja „nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst, þ.e. að við höfnum samningi sem enginn hefur enn fengið að sjá. Hvernig getur ábyrg þjóð tekið afstöðu til kosta og galla samnings sem ekki liggur fyrir? Þetta er kjarnaspurningin sem kjósendur þurfa að svara. Við erum ekki að kjósa um AÐILD að ESB Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst aðeins um hvort þjóðin vilji fá samning til að geta metið hann með upplýstum hætti. Ef samningurinn reynist slæmur höfnum við honum. En ef við stöðvum ferlið núna fáum við aldrei að sjá hvaða kjör Ísland gæti samið um. Eigum við ekki rétt á svörum við spurningum eins og? Getur Ísland notið lægri vaxta til framtíðar? Getur íslenskt atvinnulíf orðið samkeppnishæfara? Getum við laðað að fleiri fjárfestingar og ný störf? Getur ungt fólk fengið betri tækifæri til að eignast húsnæði? Getur Ísland aukið stöðugleika í efnahagslífi sínu? Getum við styrkt stöðu íslenskrar tungu og menningar? Eina leiðin til að fá svör við þessum spurningum er samningur – ekki getgátur og slagorð. Hvað segja þeir sem hafa kynnt sér málið? Undanfarið hafa einstaklingar úr ólíkum áttum hvatt þjóðina til að nálgast málið af yfirvegun. Þar á meðal hefur Hannes Pétursson skáld, bent á að rugla ekki saman þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst og endanlegri ákvörðun um aðild. Sama sjónarmið hefur komið fram hjá fjölmörgum sem eru ekki endilega sammála um ESB-aðild, en telja sjálfsagt að þjóðin fái að sjá niðurstöðu samningaviðræðna áður en hún tekur afstöðu – þannig styrkjum við lýðræðið. Hvað með menningu, tungu og sérstöðu Íslands? Sumir óttast að aðildarviðræður veiki íslenska tungu og menningu. Prófessor emeritus Davíð Þór Björgvinsson hefur bent á að reynslan bendi fremur til hins gagnstæða. Evrópusambandið byggir á þeirri hugsjón að þjóðir „sameinist í fjölbreytileika“. Reynslan er að smáar þjóðir innan sambandsins hafa fengið stuðning til að varðveita tungumál sín, menningu og sérkenni. Á tímum gervigreindar og hraðrar stafrænnar þróunar verður stuðningur við íslenska tungu, máltækni, rannsóknir og menningu líklega mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Þess vegna eigum við að spyrja: Hvernig tryggjum við best stöðu íslenskrar tungu og menningar til næstu 100 ára? Segjum já við upplýsingum og raunverulegum samningi Kæru landar. Sjálfstæð þjóð tekur ekki ákvarðanir á grundvelli ótta, heldur á grundvelli upplýsinga. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst eingöngu um að við viljum sjá samninginn við ESB. Þannig að við getum í framhaldinu tekið upplýsta ákvörðun um stærsta hagsmunamál Íslands til framtíðar. Spurningin til okkar allra er því einföld: Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun – áhugamaður um framtíð og öryggi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar