Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar 28. júní 2026 21:44 Umræðan um hvalveiðar snýst í raun ekki aðeins um hvali. Hún snýst um tvær ólíkar heimsmyndir. Önnur lítur á náttúruna sem auðlind sem okkur ber að nýta. Hin lítur á manninn sem hluta af vistkerfi sem hefur eigið gildi. Ein frægasta sena kvikmyndasögunnar er í The Matrix (1999) þegar aðalpersónan Neo hittir loks Morpheus. Neo hefur lengi fundið að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Morpheus segir við hann: „Þú finnur það. Þú hefur fundið það allt þitt líf. Það er eitthvað að heiminum. Þú veist ekki hvað það er, en það er þarna...“ Síðan býður hann Neo að velja á milli tveggja pilla. Velji Neo bláu pilluna heldur hann áfram að lifa í heimi sem hann þekkir og telur réttan. Velji hann rauðu pilluna sér hann veruleikann frá nýju sjónarhorni. Þessi sena úr The Matrix hefur orðið táknmynd þess að endurmeta eigin forsendur. Ekki endilega vegna þess að annar kosturinn feli í sér hinn endanlega sannleik, heldur vegna þess að stundum breytist sýn okkar á heiminn þegar við horfum á hann frá öðru sjónarhorni. Þetta á vel við í umræðunni um hvalveiðar. Bláa pillan: Náttúran er auðlind sem okkur ber að nýta Í umræðu undanfarinna daga má heyra að margir hafa sterkar skoðanir á því að Íslendingar eigi að veiða hval. Í hafinu í kringum landið séu hvalir og samkvæmt ráðgjöf vísindamanna þoli stofninn að veiddar séu 150 langreyðar. Íslenska þjóðin hafi í aldaraðir lifað af auðlindum hafsins. Fiskurinn hafi skapað þjóðinni lífsviðurværi og velferð og því sé eðlilegt að margir líti einnig á hvali sem auðlind. Sumir telja jafnframt að maðurinn beri ábyrgð á að halda jafnvægi í náttúrunni og að stjórna þurfi stærð dýrastofna. Út frá þeirri hugsun eru hvalveiðar eðlilegur hluti af nýtingu náttúrunnar og viðhaldi jafnvægis í náttúrinni. Stofninn þolir veiðar, hægt er að skapa verðmæti og af hverju ætti hvalurinn að vera í annarri stöðu en til dæmis þorskurinn? Rauða pillan: Við erum hluti af vistkerfinu Þessi sýn er stærri en spurningin um veiðar á hval. Hún snýst um það hvernig við skiljum samband manns og náttúru, hvað telst siðlegt og hvort við séum komin að þolmörkum í umgengni okkar við vistkerfi jarðarinnar. Við þurfum því að staldra við og íhuga hvað við erum að gera og hvað þarf að gera. Þessi sýn hefur styrkst með aukinni vísindalegri þekkingu, meðal annars á ástandi vistkerfa, verndun frumskóga, líffræðilegri fjölbreytni, friðun hafsins og loftslagsmálum. En einnig í umræðum um aflífunaraðferðir og meðferð dýra, til dæmis í fiskeldi, svínabúum, minkabúum, hvalveiðum og tilraunum með dýr. Náttúran er ekki aðeins birgðageymsla fyrir manninn. Hún er flókið vistkerfi þar sem eitt hefur áhrif á annað. Verðmæti hennar felst ekki aðeins í því hvað við getum tekið úr henni, heldur einnig í því hvernig hún viðheldur lífi á jörðinni. Maðurinn er hvorki utan náttúrunnar né yfir hana hafinn. Hann er hluti af henni. Hvalir eru ekki bara kjöt sem hægt er að selja heldur hluti af flóknu lífkerfi sem hefur þróast í milljónir ára. Á síðustu áratugum hefur vistfræðileg þekking okkar aukist verulega. Við vitum nú að stórhvalir eru ekki aðeins neytendur í fæðukeðjunni heldur lykiltegundir sem hafa áhrif á næringarefnahringrás, frumframleiðslu svifþörunga, kolefnisbindingu og líffræðilega fjölbreytni hafsins. Því snýst spurningin ekki lengur aðeins um hvort stofninn þoli veiðar heldur einnig um hvaða hlutverki hvalir gegna í vistkerfi sem við erum enn að læra að skilja. Hvora pilluna velur þú? Það er eðlilegt að skoðanir séu ólíkar á hvalveiðum. En það myndi dýpka umræðuna ef við viðurkennum að hún snýst ekki aðeins um rétt okkar til að veiða, kjöt, kvóta eða útflutningstekjur. Framtíð okkar ræðst af því hvernig við umgöngumst það vistkerfi sem við sjálf erum hluti af. Þegar veiðarnar eru hvorki nauðsynlegar fyrir afkomu þjóðarinnar né fæðuöryggi, og þegar veiðiaðferðin er umdeild, verður sífellt erfiðara að réttlæta þær. Kannski er umræðan um hvalveiðar ekki hvort við getum haldið áfram að veiða hvali heldur hvort við eigum að gera það. Við þurfum að taka afstöðu um hvernig samband manns og náttúru á að vera í framtíðinni. Bara það eitt að átta okkur á eigin stað í náttúrunni er stórt verkefni. Höfundur er meðlimur í loftslagshópnum París 1,5. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalir Hvalveiðar Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun