Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Kjartan Kjartansson skrifar 30. júní 2026 14:27 Íhaldssamur meirihlutinn við Hæstarétt Bandaríkjanna staðfesti bann við trans konum í keppnisíþróttum. AP/Mariam Zuhaib Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur staðfest að ríki megi banna trans stúlkum og konum að keppa fyrir skólaíþróttalið. Slík bönn brjóti ekki ákvæði stjórnarskrá um mismunun á grundvelli kyns í skólum.
Lög sem repúblikanar í Idaho og Vestur-Virginíu settu og bönnuðu trans stúlkum og konum að stunda keppnisíþróttir í skólum komu til kasta Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hann kvað upp dóm sinn í dag. Atkvæði í hæstarétti féllu eftir hefðbundnum átakalínum, Sex íhaldssamir dómarar skipaðir af repúblikönum staðfestu bannið en þrír frjálslyndir dómarar skipaðir af demókrötum voru á öndverðum meiði. Málið hefur verulegt fordæmisgildi enda hefur á þriðja tug ríkja þar sem repúblikanar eru við völd samþykkt sambærileg bönn við íþróttaiðkun trans kvenna. Rétturinn hafði áður snúið við eigin fordæmi um að hinsegin fólk nyti verndar gegn mismununar á grundvelli kyns á vinnustöðum með því að undanskilja trans fólk í fyrra. Bandarískar íþróttakonur eru ekki á einu máli um hvort rétt sé að banna trans konum að keppa í kvennaíþróttum. Fyrrverandi sundkonan Summer Sanders og strandblakskonan Kerri Walsh Jennings styðja slíkt bann en fótboltastjarnan Megan Rapinoe og körfuboltakonan Sue Bird vilja leyfa trans konum að keppa. Segist ekki hafa haft neitt forskot á aðrar stúlkur Málið frá Vestur-Virginíu höfðaði Becky Pepper-Jackson, sextán ára framhaldsskólanemandi sem sóttist eftir að keppa í kvennaflokki í kúluvarpi. Hún hefur skilgreint sig sem stúlku frá átta ára aldri og hefur gengist undir hormónabælandi meðferð. Pepper-Jackson er eina trans stúlkan sem hefur sóst eftir því að leika kvennaíþróttir í Vestur-Virginíu, að sögn AP-fréttastofunnar. Lögmenn hennar segja að þó að almennt sé rétt að tryggja sanngjarna samkeppni í kvennaíþróttum þá eigi það ekki við í tilfelli hennar. Hún hafi byrjað svo ung í meðferð að hún njóti einskis forskots. Málið frá Idaho varðaði trans stúlku sem stefndi ríkinu vegna bannsins þar svo hún gæti reynt að komast í frjálsíþróttalið Ríkisháskóla Idaho í Boise. Hún komst hvorki í karla né kvennaliðið þar sem hún var ekki nógu góð, að sögn lögmanna hennar. Hún hætti síðar við að sækjast eftir að keppa í kvennaflokki og vildu lögmenn hennar að málið yrði fellt niður. Þeim varð ekki að ósk sinni.
Bandaríkin Hæstiréttur Bandaríkjanna Hinsegin Málefni trans fólks Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Segir tímabært að Úkraína fái sér nýjan forseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Sjá meira