Sjokkið breyttist í ævintýri Aron Guðmundsson skrifar 1. júlí 2026 09:01 Elín Rósa hefur verið að gera það afar gott úti í atvinnumennskunni í Þýskalandi. Vísir/Ívar Fannar Íslenska landsliðskonan í handbolta, Elín Rósa Magnúsdóttir, fékk sannkallaða draumabyrjun á atvinnumannaferli sínum í Þýskalandi. Hún reynslunni ríkari að loknu fyrsta árinu og stefnir á áframhaldandi velgengni.
Elín Rósa gekk í raðir Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni frá Val fyrir um ári síðan eftir að hafa unnið allt sem hægt er að vinna hér heima og meira til. Mætti með sanni segja að fyrsta árið í atvinnumennsku hafi ekki valdið vonbrigðum því með sigri gegn Dortmund í oddaleik tryggði Lippe sér Þýskalandsmeistaratitilinn. Elín Rósa var í stóru hlutverki í vegferðinni að þeim titli. „Maður hefði ekki geta beðið um betri byrjun,“ segir Elín Rósa í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Kannski erfitt að toppa þetta en við náttúrulega bara höldum áfram og standardinn er settur hátt. Ótrúlega mikil reynsla sem maður fékk út úr þessu fyrsta ári. Maður er mjög spenntur fyrir framhaldinu. Þetta er aðeins stærra en hérna heima eins og við var að búast. En þegar að maður kemur út þá er það alltaf smá sjokk. Maður fékk góðan grunn hérna heima með því að vinna einhverja titla, vera í ákveðnu umhverfi í Val sem er geggjað. Það var gott stökk frá Val yfir í þýsku deildina en ég er mjög stolt af þessu.“ Íslendingasamfélagið hjálpaði Skrefið í eitt af stóru liðunum í Þýskalandi frá Íslandi var stórt en þá hjálpaði að hafa reynsluboltana Díönu Dögg Magnúsdóttur og Andreu Jacobsen í Íslendingaliðinu. Elín telur sig hafa þroskast mikið sem bæði manneskju og leikmann á þessu eina ári. Það er náttúrulega bara pressa á að standa sig þegar að maður er komin í einhvern svona atvinnumannaklúbb. Liðið, stelpurnar og klúbburinn tóku ótrúlega vel á móti manni. Maður fann að þetta var lítill klúbbur. Allir að hjálpast að og það að hafa Íslendingana í liðinu, Díönu Dögg og Andreu, hjálpaði manni ótrúlega mikið. Ég er mjög þakklát fyrir þær.“ Andrea Jacobsen hefur verið á mála hjá Blomberg Lippe eins og Elín Rósa og Díana en mun spila með ÍBV á næsta tímabili hér heima. vísir / hulda margrét Þvílík reynsla Íslenska kvennalandsliðið er nánast orðið áskrifandi að þátttöku á stórmótum og Elín Rósa er á því að það geri landsliðinu gott að fleiri leikmenn reyni fyrir sér í atvinnumennskunni. „Deildin heima er eins og hún er. Það er alltaf skref fram á við þegar við fáum fleiri út. Frábært skref hjá nokkrum í ár að fara út. Ég held að það sé bara jákvætt fyrir íslenskan handbolta. Þetta er ákveðið hark. En þvílík reynsla sem maður fær út úr þessu sama hversu lengi maður er. Bara eftir eitt ár er ég allavegana með meira sjálfstraust, hef tekið skref fram á við að mínu mati. Ég held það hjálpi okkur í landsliðinu alveg gríðarlega mikið.“ Elín er einn af burðarásunum í íslenska landsliðinu En í lífi atvinnumannsins gefst aldrei of mikill tími til þess að fagna sigrum og titlum. Elín Jóna er nú farin aftur af landi brott til Þýskalands því undirbúningstímabilið fyrir næsta tímabil fer að hefjast. „Okkur langar auðvitað að fylgja þessu eftir. Sýna fram á að þetta hafi ekki verið eitthvað eitt ákveðið tilvik. Við náttúrulega misstum líka af þýska bikarnum á síðasta tímabili. Við getum því klárlega gert betur og það er alltaf meiningin. Að gera betur en síðast. Við getum alltaf gert það.“ Stefnan alltaf sett hærra og lengra Elín á eitt ár eftir af núgildandi samningi sínum við Blomberg-Lippe og er ekki mikið í því að horfa of langt fram veginn. Íslendingarnir njóta sín vel í liði Blomberg-Lippe Blomberg-Lippe „Maður stefnir alltaf aðeins lengra. Svo þarf maður að sjá hvað gerist. Mér líður allavegana mjög vel úti í Þýskalandi núna. Ég á eitt ár eftir af núgildandi samningi mínum og svo kemur þetta oft mjög hratt í ljós. Ég er ekkert að fara fram úr mér núna. Tek bara þetta tímabil og svo bara sjáum við hvað gerist.“ Viðtalið við Elínu Rósu sem sýnt var í Sportpakkanum í gærkvöldi má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Þýski handboltinn Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira